hula.handverk

hula.handverk Verkefnabók prjónarans, prjóna uppskriftir, þvottamerkimiðar.

Litrík, mjúk og hlý peysa fyrir elsku Sól.Peysan er prjónuð úr allskonar afgöngum á 4 mm prjóna. Ég notaði uppskriftina ...
22/08/2026

Litrík, mjúk og hlý peysa fyrir elsku Sól.
Peysan er prjónuð úr allskonar afgöngum á 4 mm prjóna.
Ég notaði uppskriftina af
Lerki-barnapeysu, (fæst á hula.is) sem er góð grunn uppskrift í mörgum stærðum, sleppti bara mynstrinu.
Mjög skemmtilegt að raða saman litunum og sjá útkomuna 🧡

Tengdasonurinn ❤️Uppskriftin heitir Tinde og er úr Tinnu prjónablaði nr. 24Peysan er úr léttlopa og fylgiþræði. Titicaca...
16/08/2026

Tengdasonurinn ❤️
Uppskriftin heitir Tinde og er úr Tinnu prjónablaði nr. 24
Peysan er úr léttlopa og fylgiþræði.
Titicaca (litur Havana) er með í dökkbrúnalitnum en í munsturlitunum var ég með einband sem fylgiþráð. Inn í hálsmálið prjónaði ég með mjúku Baby yarn frá Isager sem ég átti.
Brúni aðal lopaliturinn er nr. 867
Ég fer stundum óhefðbundnar leiðir, á síðustu myndinni sést að efsti munsturliturinn er ljósgrár, ég var ekki sátt við hann þegar peysan var tilbúin og g*t ekki farið að rekja allt upp. Ég fékk mér því dökkbrúnan túss sem þolir þvott og fór með honum yfir munstrið, lykkju fyrir lykkju. Örugglega ekki mælt með af sérfræðingum en mér fannst þetta fín redding.

Tinna ehf.

What a beauty 🩵Ný peysaUppskriftin heitir Ease Tee og er eftir Ann Ventzel. Mér finnst mjög gaman að læra eitthvað nýtt ...
12/08/2026

What a beauty 🩵
Ný peysa
Uppskriftin heitir Ease Tee og er eftir
Ann Ventzel.
Mér finnst mjög gaman að læra eitthvað nýtt í prjóni, ég hafði ekki prófað þessa útaukningu og ekki svona útfærslu á ermum.
Ég notaði einn þráð af Mandarin Petit
(litur 5930) og einn þráð af Tynn Silk Mohair (litur 6012) á 3,5mm prjóna.
Skemmtileg uppskrift sem ég mæli með.
Anne Ventzel



Eitt af því skemmtilegasta sem við hjónin gerum saman eru svona verkefni. Við (ég) fáum hugmynd, teiknum hana upp, veltu...
22/07/2026

Eitt af því skemmtilegasta sem við hjónin gerum saman eru svona verkefni.

Við (ég) fáum hugmynd, teiknum hana upp, veltum lausnum fyrir okkur og svo byrjum við bara. Að þessu sinni ákváðum við að breyta leikkofa og grillhúsi, sem nýttust ekki nógu vel, í sól- og skjólhús.
Við gátum notað pallinn og veggina að hluta. En það var bras að púsla þessu saman og hefði kannski verið auðveldara að gera allt upp á nýtt.

Við endurnýttum nánast allt efnið – timbrið og skrúfurnar. Gler, báruplast í þakið, málning og nokkra planka þurftum við að kaupa.
Birgir sá um alla útreikninga og smíðavinnuna. Ég málaði, bar á (það á reyndar eftir að klára málningarvinnuna því það hefur ekki stytt upp í margar vikur) og kom með athugasemdir sem voru ekki alltaf vel þegnar 🤭

Útkoman er nákvæmlega eins og við vonuðum. Rými til að njóta, rækta og vonandi lengja aðeins sumarið.

Svo sjáum við til hvort að næsta skref verði að loka húsinu meira eða hafa það svona. Sólin hefur lítið látið sjá sig svo við vitum ekki hversu heitt verður þegar hún fer að skína ☀️

Við fengum frábæra þjónustu og ráð hjá Íspan, Metal og Húsasmiðjunni Hafnarfirði.

Glerið
Báruplastið, Metal.is
Timbur og málning

Built to stretch the Icelandic summer just a little bit longer.

22/07/2026

Vel lukkaðar breytingar ☀️

Peysan hennar Guðrúnar Fjólu. Prjónuð úr mjúku bómullargarni á pr.nr. 4,0
22/06/2026

Peysan hennar Guðrúnar Fjólu.
Prjónuð úr mjúku bómullargarni á pr.nr. 4,0

Address

Álftanes

Opening Hours

09:00 - 17:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when hula.handverk posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to hula.handverk:

Shortcuts

Share