29/03/2026
Á dögunum kom Tandrabretti með bilfarm af Öskjuhlíðar timbrinu til okkar, sem Fljótsdalshreppur (Fljótsdalur, Austurland) hafði keypt til að nota í burðarvirki i fyrsta heilsársíbúðarhús landsins en áður hefur Móðir Jörð byggt Asparhúsið sem er fyrsta husið alfarið ur íslensku timbri. nú skal byggt nútímans íbúðarhús alfarið úr íslensku timbri með sitkagreni úr Öskjuhlíð í burðarvirki. Skógarbændur af héraði sjá svo um að skaffa restina af hráefni i husið. Bandsagað Lerki að utan. Asparpanill að innan í loft og veggi og Lerki gólfborð.
Allt er þetta framleitt hjá okkur. Afskurður við framleiðslu er síðan nyttur sem viðarorka til að þurrka allt timbrið i þurrkklefum okkar.
Mjög skemmtilegt verkefni og stor áfangi að nú sé orðin raunverulegur valkostur að smíða ser hús úr íslenskum skógum.
Skógurinn sem felldur var í Öskjuhlíð verður brátt að burðarviðum í fyrsta íbúðarhúsinu sem smíðað er alfarið úr íslensku timbri. Mikil og nákvæm flokkun fer fram við að velja burðarviðina í húsið.