01/09/2026
Gulur september 💛
Í september tökum við hjá Kúnígúnd þátt í Gulum september og vekjum um leið athygli á Alþjóðadegi sjálfsvígsforvarna 🎗️
Mánuðurinn minnir okkur á hversu mikilvægt það er að hlúa að geðheilsunni, sýna hvert öðru umhyggju og vera til staðar fyrir fólkið í kringum okkur.
Við hvetjum ykkur til að taka þátt, klæðast gulu, deila hlýjum orðum eða einfaldlega gefa ykkur tíma til að heyra í einhverjum sem ykkur þykir vænt um.
Litlu hlutirnir geta skipt miklu máli 💛