Kertin koma í fallegum glerkrukkum með álloki. Kertin okkar fást í versluninni Dimm www.dimm.is RÓSK REYKJAVÍK
Ilmkertin frá RÓSK eru handgerð á Íslandi og unnin úr 100% náttúrulegu sojavaxi og vandlega völdum ilmkjarnaolíum. RÓSK REYKJAVÍK var stofnað af vinkonum með sameiginlega ástríðu að búa til falleg, stílhrein og einstaklega vel ilmandi kerti. Hugmynda- og þróunarvinnan fór fram í eldhúsinu og þar handgerum við öll okkar kerti í litlum skömmtum. Það eru fleiri spennandi og vel ilmandi verkefni á vinnuborðinu okkar sem við erum ótrúlega spenntar að kynna til leiks þegar þar að kemur. Lykt er svo nátengd allri okkar upplifun og minningum og hver ilmur á sinn stað og stund. Við elskum ferðalagið sem felst í því að setja saman ilmina okkar þar sem við eyðum miklum tíma í að prófa okkur áfram í leitinni að dásamlegum ilmi sem við tengjum við vellíðan og góðar minningar. Við höfum þróað þrjá ilmi sem allir hafa sitt sérkenni og tengja okkur við mismunandi stundir. Jólailmurinn okkar er sá fjórði sem við munum kynna betur fyrir jól. No. 1
Clean Cotton – Birchwood Pine – Ocean Mist
No. 2
Pink Grapefruit – Birchwood Pine - Citronella
No. 3
Mahogany teakwood – Leather - Bourbon