Mannkennd

Mannkennd Mannkennd gefur út barnabækur um fötlunarfjölbreytileika - bækur sem fræða, efla samkennd og dýpka skilning barna og samfélagsins alls.

Mannkennd er fyrsta og eina íslenska bókaútgáfan sem sérhæfir sig í útgáfu hágæða barnabóka um fötlunarfjölbreytileika í samstarfi við hagsmunasamtök á sviði fötlunar.

Börn læra ekki aðeins af bókum. Þau læra líka hverjir fá að tilheyra, hverjir mega vera aðalpersónur og hverjir skipta m...
27/08/2026

Börn læra ekki aðeins af bókum. Þau læra líka hverjir fá að tilheyra, hverjir mega vera aðalpersónur og hverjir skipta máli.

Þegar fötluð börn sjást sjaldan í barnabókum verður fjarvera þeirra hluti af skilaboðunum. Sýnileiki skiptir því máli - bæði fyrir fötluð börn sem þurfa að geta speglað sig í sögum og fyrir önnur börn sem læra í gegnum bækur að fólk er ólíkt en á jafnan rétt á að tilheyra.

Þess vegna varð Mannkennd til: til að gefa út vandaðar barnabækur þar sem fötluð börn fá að vera heildstæðar persónur í sögum um vináttu, ævintýri, húmor, fjölskyldu og hversdagslíf - ekki aðeins táknmyndir fötlunar eða tilefni til fræðslu.

Hvaða barnabók manst þú eftir þar sem fatlað barn fékk einfaldlega að vera barn? 💛

27/07/2026

Útgáfuferlið er að stórum hluta vinna sem enginn sér: skjöl, tölvupóstar, orðaval, samningar og ótal smáatriði.

En með hverju skrefi færist Lísa og Lio nær því að verða íslensk bók 💙

Það að tryggja útgáfuréttinn er stór áfangi — en fyrir okkur hjá Mannkennd snýst þetta ekki bara um að gefa út bók📖Það s...
30/06/2026

Það að tryggja útgáfuréttinn er stór áfangi — en fyrir okkur hjá Mannkennd snýst þetta ekki bara um að gefa út bók📖

Það snýst um að velja sögur sem skipta máli.
Sögur sem geta aukið sýnileika, opnað samtal og hjálpað börnum að sjá bæði sjálf sig og aðra í nýju ljósi.

Við trúum því að barnabækur séu ekki bara afþreying.
Þær geta líka mótað skilning, samkennd og það sem fær að sjást.

Þess vegna skiptir þessi bók máli fyrir okkur.
Og þess vegna er þetta bara byrjunin.

Við erum svooo spennt að kynna fyrir ykkur fyrstu bókinni okkar; “Lísa og Lio - stelpan og geimrefurinn” !!!🥳🥳Við erum a...
23/06/2026

Við erum svooo spennt að kynna fyrir ykkur fyrstu bókinni okkar; “Lísa og Lio - stelpan og geimrefurinn” !!!🥳🥳

Við erum að þýða hana og hún fer svo í prentun í lok sumars. Stefnum á að bókin komi út í október (með fyrirvara um allt sem gæti komið upp🤪)

Okkur fannst sárlega vanta barnabók á íslensku þar sem sögupersónan er einhverf stelpa og hlökkum til að kynna ykkur fyrir yndislegu Lísu og Lio vini hennar🥰

Bókin kemur út í samstarfi við Einhverfusamtökin og ætlum við að fylgja bókinni eftir með fræðslu inn í skóla📖

Hvet ykkur til að skoða skemmtilegu myndasögurnar hennar Danielu Schreiter

🥳Gleðitíðindi!! Mannkennd hefur keypt útgáfuréttinn af bókinni “Lisa og Lio” eftir Danielu Schreiter  Bókin kemur út í s...
18/06/2026

🥳Gleðitíðindi!! Mannkennd hefur keypt útgáfuréttinn af bókinni “Lisa og Lio” eftir Danielu Schreiter
Bókin kemur út í samstarfi við Einhverfusamtökin Einhverfusamtökin og er væntanleg í haust🍁

Við erum gríðarlega spennt yfir þessu og hlökkum til að segja ykkur meira frá bókinni📖

15–20% Íslendinga eru með fötlun.Á hverju ári koma út yfir 200 barnabækur á íslensku.Samt eru bækur þar sem fötluð börn ...
08/06/2026

15–20% Íslendinga eru með fötlun.

Á hverju ári koma út yfir 200 barnabækur á íslensku.
Samt eru bækur þar sem fötluð börn geta speglað sig enn alltof fáar.

Rannsóknir benda ekki bara á skort á slíkum bókum, heldur líka á það hvernig fötlun birtist í þeim. Börn fá oft misvísandi skilaboð um fötlun úr barnabókum. Fötluðum sögupersónum er of oft stillt upp sem harmleik eða óþarfa hetjusögu, í stað þess að vera einfaldlega hluti af margbreytileikanum.

Þegar börn lesa nær eingöngu um ófatlaðar persónur verður sjónarhorn þeirra einhæfara. Og þegar fötluð börn sjá sig ekki í bókum missa þau af speglun, sýnileika og tilheyringu.

Öll börn eiga rétt á að sjá sig í sögum!

Heimildir:

Hagstofa Íslands, Fatlað fólk á Íslandi (2024).
Bókatíðindi / Félag íslenskra bókaútgefenda.
Jónína Jónsdóttir (2015).
Andrea Rut Birgisdóttir og María Erla Finnbjörnsdóttir (2021).
Helena Sól Alexandersdóttir og Ragnheiður Elín Guðjónsdóttir (2024).

Það er sláandi að fara í gegnum sumar af þessum gömlu bókum og ævintýrum sem hafa verið lesnar fyrir börn í gegnum tíðin...
27/05/2026

Það er sláandi að fara í gegnum sumar af þessum gömlu bókum og ævintýrum sem hafa verið lesnar fyrir börn í gegnum tíðina! Við þurfum að breyta þessu og sýna fötlum í jákvæðara ljósi og bjóða upp á persónur sem fötluð börn geta speglað sig í og ófatlaðir lesendur geta skilið og lært af🤍👌🏻

🥳🥳
04/05/2026

🥳🥳

Address

Hólavegur 4
Siglufjörður
580

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mannkennd posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Mannkennd:

Shortcuts

Share