13/09/2026
🌊 **Það er heldur betur líf á Brimsölum þessa dagana!**
Í þessari viku tökum við á móti myndlistarkonunum **Laura Saturnino og Luisa Díaz Chamorro frá Torino á Ítalíu**, sem dvelja og skapa hjá okkur í nokkra daga.
Þær vinna með vatnsliti og ætla að sækja innblástur í landslagið, birtuna og umhverfið hér í Ólafsfirði. Dvölin snýst þó ekki aðeins um þeirra eigin sköpun því tveir bekkir úr grunnskólanum koma á Brimsali og fá að spreyta sig á vatnslitamálun undir leiðsögn þeirra. 🎨
Áður en Laura og Luisa halda heim ætlum við svo að opna litla **örsýningu á Brimsölum**, þar sem hægt verður að sjá verkin sem orðið hafa til á meðan á dvölinni stendur. Verkin verða væntanlega einnig til sölu.
🎶 **Og svo tekur tónlistin við!**
Næstu gestir okkar eru **Kupfer**, dúó frá München í Þýskalandi, skipað þeim **Stefan Weyerer og Nick Flade**.
Stefan kemur fyrst til okkar og ætlar að nýta dvölina á Brimsölum til að byrja að semja tónlist fyrir nýja plötu. Hann mun einnig koma fram í Menntaskólanum á Tröllaskaga í tengslum við friðardaginn.
Síðar bætist Nick við og saman ætla þeir Stefan að bjóða upp á **pop-up tónleika á Brimsölum** – afslappað gigg, tónlist og góða stemningu. 🎵
Á sama tíma höldum við áfram að undirbúa næstu sýningu og fleiri viðburði sem eru fram undan.
**Myndlist, tónlist, börn og ungmenni, gestir frá öðrum löndum og sköpun sem sækir innblástur í staðinn okkar.**
Það er einmitt svona sem okkur langar að Brimsalir séu – rými þar sem fólk kemur saman, skapar, miðlar og skilur eitthvað eftir sig. 💙
**Fylgist með – nánari upplýsingar um örsýninguna og pop-up tónleikana koma fljótlega!**