Herjólfshús

Herjólfshús Herjólfshúsið í Þorlákshöfn hefur fengið nýtt hlutverk en þar er starfræktur handverksmarkaður, kaffihús og upplýsingamiðstöð á sumrin.

Þetta er þriðja sumarið sem í Herjólfshúsinu er starfræktur handverksmarkaður, kaffihús og upplýsingamiðstöð og er það opið alla daga frá 12:00 - 17:00. Reksturinn er í höndum Handverksfélags Ölfuss og það er því auðvitað handverk frá listafólki í sveitarfélaginu sem er miðpunktur starfseminnar en einnig er til sölu humar, kjötvörur beint frá býli, harðfiskur og söl. Þá er hægt að fá að láni veiðistangir og dorga á bryggjunni. Endilega að kíkja við í kaffi og vöfflur!

Konunar í handverksfélaginu eru að selja handverk sitt í andyrinu hjá bókasafninu , um að gera að kíkja á þær og gera gó...
01/12/2014

Konunar í handverksfélaginu eru að selja handverk sitt í andyrinu hjá bókasafninu , um að gera að kíkja á þær og gera góð kaup

Hér verður opið í dag, Herjólfur er kominn og mikið stuð :)
31/08/2014

Hér verður opið í dag, Herjólfur er kominn og mikið stuð :)

Hér er sólin :) skottsala í fullum gangi, handverk og kjöt með 20%afslátt og kaffihlaðborð fylgir með kaffibollanum :)
30/08/2014

Hér er sólin :) skottsala í fullum gangi, handverk og kjöt með 20%afslátt og kaffihlaðborð fylgir með kaffibollanum :)

Forsíðan á Dagskránni sem kom út í dag :)
28/08/2014

Forsíðan á Dagskránni sem kom út í dag :)

28/08/2014

Laugardaginn 30 ágúst verður haldin skottsala fyrir utan Herjólfshúsið í Þorlákshöfn. Byrjar kl 12:00 og lýkur kl 17:00. Allir eru velkomnir að koma og selja dót úr geymslunni sinni og það sem er hætt að nota :) - endilega deilið þessu áfram svo að sem flestir sjái þetta og geti tekið þátt í skottsölunni :)

26/08/2014

Nú er sumarið senn á enda og því líður að lokun handverksmarkaðarins í Herjólfshúsinu í Þorlákshöfn. Það er því vel við hæfi að halda uppskeruhátíð í lok sumars. Laugardaginn 30. ágúst verður skottsala á bílaplaninu við Herjólfshúsið og auðvitað eru allir velkomnir að koma með bílinn fullan af söluvöru til að selja úr skottinu. Þá verður boðið upp á glæsilegt kökuboð innanhúss ásamt því að handverksfólk mun kynna vörur sínar og spjalla við gesti. Krakkar á öllum aldri geta svo að sjálfsögðu fengið veiðistangir að láni fyrir dorgið á bryggjunni. Sunnudaginn 31. ágúst mun svo handverksmarkaðurinn loka eftir gott og skemmtilegt sumar og fara í vetrarfrí. Endilega kíkið við í Herjólfshúsið næstu helgi og kveðjið með okkur sumarið!

24/08/2014

Það er opið hjá okkur í dag til 17:00. Hingað hafa margir kíkt við, ert þú búinn að koma hingað í dag?

23/08/2014

Það er opið hjá okkur í dag til 17:00. Hjá okkur fæst humar, harðfiskur, söl og kjöt beint frá bónda :)

16/08/2014

Í dag er opið hjá okkur frá 12:00 - 17:00.

Fjör á bryggjunni við Herjólfshús opið 12 til 17
11/08/2014

Fjör á bryggjunni við Herjólfshús opið 12 til 17

Address

Hafnarbakki
Þorlákshöfn
815

Opening Hours

Monday 12:00 - 17:00
Tuesday 12:00 - 17:00
Wednesday 12:00 - 17:00
Thursday 12:00 - 17:00
Friday 12:00 - 17:00
Saturday 12:00 - 17:00
Sunday 12:00 - 17:00

Telephone

8551575

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Herjólfshús posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share