Býflugan og blómið

Býflugan og blómið Býflugan og blómið er blóma- og gjafavöruverslun staðsett á Dalsbraut 1 Akureyri, sími 461 5444 www.byflugan.is

Haustlyng og haustlaukar, afskorin blóm, ilmkerti,reykelsi og kandís🤩 verður ekki betra í haustblíðunni sem er hér á Aku...
17/09/2026

Haustlyng og haustlaukar, afskorin blóm, ilmkerti,reykelsi og kandís🤩 verður ekki betra í haustblíðunni sem er hér á Akureyri í dag 🤗 byflugan.is 🐝🌼

Nú er tími haustlaukanna og þá sérstaklega túlípana🤩🤩    Túlípanar eru allskonar og eru til í mörgum stærðum, gerðum og ...
15/09/2026

Nú er tími haustlaukanna og þá sérstaklega túlípana🤩🤩 Túlípanar eru allskonar og eru til í mörgum stærðum, gerðum og litum, bæði einlitir og marglitir og svo einfaldir eða fylltir.
Dýptin sem gróðursett er á ræðst af stærð laukana. Þumalputtareglan er að miða við að dýptin sé þreföld hæð lauksins, þannig að stærri laukar eru gróðursettir dýpra en minni laukar og vilja þeir vera í lausum framræstum jarðvegi. Þeir kjósa skjól og sólríkan stað OG gleðja svo dásamlega næstu vor í allri sinni litadýrð🐝🌼 Við erum hér til að aðstoða sem best við getum :) svo einfalt; niður núna og upp í vor 🐝🌼byflugan.is

Allir geta fundið sér eitthvað fallegt hjá okkur í Býflugunni og blóminu 🐝🌼opið ALLA daga 🐝🌼byflugan.is
12/09/2026

Allir geta fundið sér eitthvað fallegt hjá okkur í Býflugunni og blóminu 🐝🌼opið ALLA daga 🐝🌼byflugan.is

HAUSTLAUKAR ( setur niður núna og þeir koma upp næsta vor) Svo mikið einfalt og lítið mál 😉Allskonar týpur og allskonar ...
11/09/2026

HAUSTLAUKAR ( setur niður núna og þeir koma upp næsta vor) Svo mikið einfalt og lítið mál 😉Allskonar týpur og allskonar litir 🌼🌸🌺🪷🪻🌷 Við erum hér til að aðstoða við val og annað sem viðkemur þessum góða vorboða🤗 Opið laugardaga 10-17 og sunnudaga 11-16 🐝🌼 Verið velkomin eða farið á byflugan.is

Allt í kransagerð🍁🍂🌿⭕️ Opið alla virka daga frá 10-18 🐝🌼
09/09/2026

Allt í kransagerð🍁🍂🌿⭕️ Opið alla virka daga frá 10-18 🐝🌼

Í dag er gott að fara út í garð og planta haustlaukum, fá sér afskorin blóm í vasa🥰 léttir lundina og bætir geðið, kanns...
08/09/2026

Í dag er gott að fara út í garð og planta haustlaukum, fá sér afskorin blóm í vasa🥰 léttir lundina og bætir geðið, kannski pínu súkkulaði líka🤗 grípa kerti og ilmandi sàpu með svo það verði kósíheit þegar svo á við😍 🕯 erum með opið ALLA daga🐝🌼 Sjáumst

Samúðarblóm og skreytingar 🥀 allt eftir þínum óskum 🥀 hvort sem eru lifandi blóm eða gerfi blóm og hvort það séu venjule...
07/09/2026

Samúðarblóm og skreytingar 🥀 allt eftir þínum óskum 🥀 hvort sem eru lifandi blóm eða gerfi blóm og hvort það séu venjuleg kerti eða Ledkerti í skreytingunum 🐝🌼

HAUSTLAUKATÍMINN 🤩Villitúlípanar eru ýmsar bótanískar smávaxnar tegundir. Harðgerðir en lágvaxnir, stöngullinn 10 til 30...
05/09/2026

HAUSTLAUKATÍMINN 🤩Villitúlípanar eru ýmsar bótanískar smávaxnar tegundir. Harðgerðir en lágvaxnir, stöngullinn 10 til 30 sentímetrar á hæð. Fljótir að aðlaga sig og henta í sumarbústaðalönd. Þeir eru oft minni í sniðum en hefðbundnir ræktaðir túlípanar. Þeir eru harðgerðari og eiga það til að endurblómstra betur ár frá ári heldur en stóru garðtúlípanarnir. Fosteriana túlípanar (einnig oft kallaðir keisaratúlípanar eða eldtúlipanar á íslensku) eru flokkur harðgerðra og snemmblómstrandi túlípana. Þeir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera mjög lífseigir og áreiðanlegir fjölæringar sem koma gjarnan upp aftur og aftur ár eftir ár, ólíkt mörgum öðrum ræktuðum túlípanategundum sem dofna. Stuttir og sterkir stilkar gera það að verkum að þeir standast íslenska vorvinda mun betur en hávaxnari afbrigði og svo eru það Greigii túlípanar: Það sem einkennir greigii túlípana hvað mest eru breiðu blöðin sem eru skreytt með dökkfjólubláum eða brúnum rákum og dílum. Blómin eru stór miðað við stöngulhæð. Blöðin hafa því mikið prýðisgildi löngu áður en blómin sjálf springa út. ÞESSAR GERÐIR BLÓMSTRA SNEMMA 🐝🌼byflugan.is

HAUSTLAUKATÍMINN 🤩🤩 Það er ekkert dásamlegra en að sjá krókusa kíkja upp úr snjónum á vorin 🤩🤩 Krókusar blómstra snemma ...
05/09/2026

HAUSTLAUKATÍMINN 🤩🤩 Það er ekkert dásamlegra en að sjá krókusa kíkja upp úr snjónum á vorin 🤩🤩 Krókusar blómstra snemma á vorin. Þeir eru lágvaxnir og eru í mörgum litaafbrigðum. Mjög fallegt er að planta þeim í litlar þyrpingar, 10--20 saman, í grasflötina og fylgjast með þegar þeir koma upp á vorin.
Þeir eru vorboðar með stóru VAFFI ;) blómstra jafnvel
snemma í mars. Þeir er mjög harðgerðir og eiga það til að þroska fræ og fjölga sér þannig. Laukurinn eða hnúðurinn er fremur lítill og því gróðursettur grunnt í jarðvegi. 🐝🌼 Opið alla daga vikunnar og allan sólarhringinn á byflugan.is 🐝🌼

03/09/2026

Haustlaukarnir
Býflugan og blómið Akureyri

Address

Dalsbraut 1
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 10:00 - 18:00
Tuesday 10:00 - 18:00
Wednesday 10:00 - 18:00
Thursday 10:00 - 18:00
Friday 10:00 - 18:00
Saturday 10:00 - 17:00
Sunday 11:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Býflugan og blómið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Býflugan og blómið:

Shortcuts

Share