10/05/2024
Kvenfélagið Hekla hefur selt veislutjaldið sitt sem það hefur rekið frá árinu 2006. Í gegnum árin hafa fjölmargir leigt tjaldið og sumir oftar en einu sinni. Það hefur spurst víða út að hægt sé að leigja svona tjald hér norðanlands og vonum við að eftirspurn verði áfram góð.
Nýr rekstraraðili er Gunnur Gísladóttir, Hofi á Skaga og óskum við henni til hamingju. Hægt verður að ná í hana í gegnum FB-síðu tjaldsins, í síma 861-8483 eða [email protected]
Kvenfélagið Hekla þakkar öllum þeim sem leigt hafa tjaldið í gegnum tíðina.