28/08/2026
Kæru vinir og velunnarar. Þá er komið að haustslátrun og við verðum með sölu beint frá bónda eins og síðustu ár.
Afhending verður eins og áður á Bíldshöfða en líklega verða tvær afhendingar í haust og er mjög líklegt að sú fyrri verði strax 22 september. Það verður auglýst nánar hér á síðunni þegar nær dregur.
Pantanir óskast með skilaboðum inn á síðuna og mikilvægt að setja með netfang og GSM símanúmer en einnig er hægt að panta í síma 854 8797.
Verðið er 2.200 krónur á kílóið en skrokkarnir eru frá 15-21kg. Fjöldi skrokka sem að eru 15-17kg gæti verið takmarkaður en þá er alltaf möguleiki á að fá læri og hryggi í helminga.
Hægt er að fá skrokkinn sagaðan á eftirfarandi hátt:
Melalamb 1
Læri heil, Hryggur heill, Frampartur í súpukjöt og grillsneiðar, slög heil.
Melalamb 2
Læri sneiðar, Hryggur sneiðar, Frampartur súpukjöt og grillsneiðar slög bita/súpukjöt
Melalamb 3
Læri heil, Hryggur kótilettur, Frampartur súpukjöt og grillsneiðar, slög bita(súpukjöt
Melalamb 4
7 parta sögun, Læri heil, Hryggur heill, Frampartar heilir, slög heil
Ef aðrar óskir eru um sögun þá er boðið uppá eftirfarandi möguleika:
Frampartur:
1)Heilir bógar
2)Súpukjöt
3)Grillsneiðar
4)Súpukjöt og Grillsneiðar
Hryggur:
1)Heill
2)Í helminga
3)Einfaldar kótilettur
4)Tvöfaldar kótilettur
Slög:
1)Heil
2)Grill
3)Bita/Súpukjöt
Læri:
1)Heil
2)Hálf
3)Sneiðar
Bestu kveðjur
Melabændur