Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar

Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar. Formaður:
Páll Pálsson
Varaformaður:
Jökull Ýmir Guðmundsson

[email protected]

Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar var stofnað árið 2002 utan um þrjár gerðir af mótorsporti en það var Motocross, Rallycross og Go kart og varð félagið deildarskipt. Seinna kom Road Race og Drift inn sem deildir.

Í dag eru starfandi 3 deildir í félaginu og iðka sport sitt á brautum AÍH í Kapelluhrauni í Hafnarfirði.

Öllum sem hafa áhuga á að ganga í AÍH er það frjálst og hvetjum við alla að kynna sér málin. Deildir AÍH:

Driftdeild AÍH
Go kartdeild AÍH
Rallycrossdeild AÍH

Brautir AÍH eru:

Malbikuð braut 850m byggð 1996
Drift
Go kart
Mótorhjól

Malbikuð og malarbraut 800m byggð 1991
Rallycross

Motocross braut 1000m byggð 2013
Motocross fyrir börn og unglinga

Sunnudaginn 30. ágúst kláraðist íslandsmótið í rallycrossi.   Þetta var fimmta umferðin og úrslit óráðin í öllum flokkum...
08/09/2026

Sunnudaginn 30. ágúst kláraðist íslandsmótið í rallycrossi. Þetta var fimmta umferðin og úrslit óráðin í öllum flokkum og spennan var sérstaklega mikil. 62 keppendur voru skráðir og gekk keppnin vonum framar enda vel mönnuð og keppendur upplagðir í slaginn.
Einnig var minningarathöfn um einn af brautryðjendum sportsins Jón Sigurð Halldórsson en hann lést í slysi rétt fyrir fyrstu keppni á brautinni. Aðrir brautryðjendur voru heiðraðir fyrir sína aðkomu að byggingu brautarinnar og eru þeir einnig sæmdir heiðursfélagar í AÍH fyrir sitt mikla og góða starf, þeir eru Guðbergur Guðbergsson, Birgir Vagnsson, Ólafur Sigurjónsson og Karl Gunnlaugsson heitinn og Einar Gíslason í ET.
Okkur sem störfum í AÍH þótti vænt um þessa stund og að fá að taka í höndina á þessum köppum sem lögðu grunninn sem byggt hefur verið á þessi 35 ár sem starf hefur verið þarna, enn og aftur takk fyrir ykkar aðkomu herramenn!
Við þökkum starfsfólki kærlega fyrir sitt mikla framlag í sumar sem og keppendum fyrir drengilega og góða keppni ásamt styrktaraðilum sem hafa aldeilis lagt okkur lið í að gera þetta vel. Nú er eftir Rednek mótið 19-20.sept og búumst við við metþátttöku í öllum flokkum.
Takk kærlega fyrir frábært sumar. 😎✌️

Fjórða og seinasta umferð í Drifti 2026 var haldin nú um helgina í samstarfi með Dragonfly Ink, hörku bardagar, illað ve...
12/08/2026

Fjórða og seinasta umferð í Drifti 2026 var haldin nú um helgina í samstarfi með Dragonfly Ink, hörku bardagar, illað veður og geggjuð stemning. Frábær endir á geggjuðu drift sumri!
Okkur langar að þakka ykkur bílstjórum, liðsmönnum, styrktaraðilum, aðdáendum og fleirum í kringum þetta geggjaða sport okkar fyrir skemmtilegt sumar 🥳✌️
Hér eru nokkrar myndir frá keppninni frá

Rallycross brautin er 35 ára í ár. Það var grettistak að smíða slíkt mannvirki með litla sem enga peninga og stóla algjö...
22/07/2026

Rallycross brautin er 35 ára í ár. Það var grettistak að smíða slíkt mannvirki með litla sem enga peninga og stóla algjörlega á sjálfboðaliða. Þeim heiðursmönnum sem réðust í þetta framtak af áhuganum einum saman verður seint fullþakkað fyrir sitt framtak sem ennþá ávaxtar sig árlega í formi ungra akstursíþróttamanna, vináttu og góðra stunda sem þarna hafa myndast. Við horfum til baka á þessu ári full þakklætis til þeirra manna sem réðust í verkefnið ásamt öllum þeim sjálfboðaliðum sem starfað hafa við brautina, æfingarnar og keppnirnar sem og annarra verka fyrir þær iþróttagreinar sem þarna hafa verið stundaðar öll árin.
Vonandi verða næstu 35 árin jafn gjöful og þau síðustu og þarna skapist áfram það góða starf sem AÍH hefur staðið fyrir.
Takk fyrir ykkur.

Bestu kveðjur
Páll Pálsson
Formaður AIH

Address

Krýsuvíkurvegur
Hafnarfjörður
221

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar:

Shortcuts

Share