BROKK netverslun hestamannsins

BROKK netverslun hestamannsins Hágæða vörur fyrir hestafólk þar sem öryggi og útlit fer saman. Þú færð Brokk vörurnar í versluninni að Hlíðarenda 22 í Spretti og á brokk.is.

08/09/2026

🐴💛 Það er ekki að ástæðulausu sem barnahnakkurinn okkar hefur slegið í gegn!
Barnið situr vel og örugglega í hnakknum, er vel skorðað og líður vel á hestbaki.
Og mömmuhjartað… það slær aðeins hægar. ❤️

Goðsögnina Magnús Kjartansson þarf ekki að kynna 🎶🐴Maggi hefur heldur betur sett mark sitt á íslenskt tónlistarlíf – en ...
06/09/2026

Goðsögnina Magnús Kjartansson þarf ekki að kynna 🎶🐴
Maggi hefur heldur betur sett mark sitt á íslenskt tónlistarlíf – en hér ætlar hann ekki að segja okkur frá tónlistinni, heldur reynslu sinni af Helite vestinu frá Brokk.
Sú reynsla hófst með aðeins meiri látum en hann hafði kannski gert ráð fyrir... 😅
Maggi segir frá:
„Ég hafði verið 15 ár á baki og ekki dottið af nema örsjaldan – og alltaf sloppið án áverka. Svo fæ ég mér vesti og viti menn... Í fyrstu tveimur reiðtúrunum í nýja Helite vestinu datt ég af baki í bæði skiptin!
Fyrra skiptið var í Álfaskeiði frá Syðra-Langholti. Eftir miklar rigningar var reiðvegurinn orðinn blautur, háll og djúpur. Ég ákvað því að ríða við hliðina á veginum, en þar gaf jarðvegurinn sig undan okkur og ég fór af baki. Ég stóð upp ómeiddur.
Hitt skiptið var ég að fara yfir mýri þegar hesturinn sökk skyndilega með framfæturna ofan í drulluna og festist. Ég skaust fram af honum og á hausinn – og vestið blés út. Aftur slapp ég ómeiddur.
Svo eftir 15 ár með lítið um byltur fékk vestið heldur betur að sanna sig strax í fyrstu tveimur reiðtúrunum!“
- Magnús Kjartansson, hesta- og tónlistarmaður

03/09/2026

Virkar Zenroll í alvöru? 👀🌿

Þetta er ein algengasta spurningin sem við fáum – og ég skil hana vel, því ég var sjálf mjög skeptísk fyrst! Það var ekki fyrr en ég prófaði Zenroll sjálf og sá áhrifin að ég ákvað ég að bjóða upp á það hjá Brokk.

Notkunin er súper einföld: Rúllaðu 3–5 sinnum í kringum nasavængi hestsins og fylgstu með. Þegar hesturinn byrjar að japla, fella höfuðið, anda dýpra eða lygna aftur augunum sérðu merki um slökun. Ef ekkert gerist má einfaldlega bera aðeins meira á. Zenroll er einnig frábært hjálpartæki fyrir járningar og hestakerrur.

Zenroll getur hjálpað hestinum að slaka á, hlusta betur á knapann og verða síður upptekinn af öllu sem er að gerast í kringum hann. Áhrifin vara í um klukkutíma, mismunandi eftir hestum, og hægt er að bera aftur á eftir þörfum.

🌿 100% náttúrulegar ilmolíur
🐴 Einfalt í notkun
✨ Meiri ró og fókus

Og smá bónus: Ég mæli líka með að knapinn prófi Zenroll á sig! 😉

Þú getur lesið þér nánar til um Zenroll hér: https://www.brokk.is/product/zenroll-roandi-roll-on-fyrir-hesta/

Við þökkum Ranný Kramer kærlega fyrir að deila reynslu sinni af Helite vestinu frá Brokk 💙“Ég sagði ykkur frá því þegar ...
01/09/2026

Við þökkum Ranný Kramer kærlega fyrir að deila reynslu sinni af Helite vestinu frá Brokk 💙
“Ég sagði ykkur frá því þegar kallinn minn datt af baki og fannst eins og að henda sér í sófa.

Nú er ég sjálf búin að detta, ekki 1x heldur 2x.

Fyrra skiptið var ég að prófa hest sem hrekkti mig svona svakalega. Ég var eins og tuskubrúða á baki og fauk að lokum af. Alheil og ekkert brot.

Síðara skiptið var í raun frekar hallærislegt 😅 Ég var í hestaferð með rekstur og minn hestur elti félaga sinn ofan í mjög djúpa skorninga. Svo djúpa að ég þurfti að lyfta fótunum mjög hátt (aftur fyrir mig) svo þeir myndu ekki þvælast fyrir. Ég g*t það þar sem ég var líka í segulístöðunum frá Brokk.

Engu að síður, þar sem hesturinn var á stökki í skorningunum, rakst hnéð að lokum í og ég fauk af. Ég stóð upp stráheil, fyrir utan nokkra marbletti og svona eins og ég hefði misstigið mig. Grautfúl og sært stolt. Fúl að hafa ekki getað klárað þennan legg af ferðinni.

Alls fuku þrír af í þessari ferð, þar af tveir á þessum legg. Allir í Brokk vesti — og allir fóru á bak aftur í heilu lagi 🥰”
- Ranný Kramer, hestakona í Herði

Það er einfaldlega skemmtilegra að vera vel varin(n) á hestbaki 🤎Með Helite öryggisvesti frá Brokk geturðu verið afslapp...
23/08/2026

Það er einfaldlega skemmtilegra að vera vel varin(n) á hestbaki 🤎
Með Helite öryggisvesti frá Brokk geturðu verið afslappaðri í hnakknum og notið reiðtúrsins með þeirri vissu að þú sért í bestu vörn sem völ er á.

✨ Blása út á aðeins 0,01 sekúndu
🇫🇷 Framleidd í Frakklandi
✔️ 4 ára ábyrgð
💙 Tryggingarfélögin Vörður og TM niðurgreiða vestin um 20%

Þá eru fjórar hestaferðir afstaðnar og ég hef varla farið úr Suedwind reiðstígvélunum mínum í allt sumar🤎Þau eru jafn þæ...
20/08/2026

Þá eru fjórar hestaferðir afstaðnar og ég hef varla farið úr Suedwind reiðstígvélunum mínum í allt sumar🤎

Þau eru jafn þægileg og þau eru falleg og hafa reynst frábærlega, bæði í löngum ferðum og við gegningar í hesthúsinu.

Þú getur skoðað Suedwind reiðstígvélin hér:
https://www.brokk.is/product-category/fyrir-knapann/reidskor-og-reidstigvel/

👟 Við vorum að fá risa skósendingu! 🎉Nú eigum við aftur til allar stærðir af vinsælustu skónum okkar.Í sumar er opið eft...
19/08/2026

👟 Við vorum að fá risa skósendingu! 🎉

Nú eigum við aftur til allar stærðir af vinsælustu skónum okkar.

Í sumar er opið eftir þörfum. Þið eruð hjartanlega velkomin að koma og máta – hafið bara samband við okkur fyrst í síma 780 1881, þá mælum við okkur mót.

Hlökkum til að sjá ykkur! 😊

19/08/2026

Vorum að fá nýja skósendingu 🙌 Eigum allar stærðir!

27/07/2026

Það er alltaf jafn gaman að fá reynslusögur frá ykkur og sjá Brokk-vörurnar í notkun💛
Hér sjáið þið myndband sem einn viðskiptavinur sendi okkur af barnahnakkinum okkar. Það gleður okkur svo mikið að sjá hvað hann hefur slegið í gegn hjá börnum á aldrinum 0–11 ára.
Kærar þakkir fyrir traustið og fyrir að deila reynslu ykkar með okkur. Það hjálpar öðrum foreldrum að sjá vöruna í raunverulegri notkun 🫶

Það er einfaldlega skemmtilegra að vera vel varin(n) í hestaferð 🐴💚Góðir félagar, góðir hestar og Helite öryggisvesti fr...
26/07/2026

Það er einfaldlega skemmtilegra að vera vel varin(n) í hestaferð 🐴💚

Góðir félagar, góðir hestar og Helite öryggisvesti frá Brokk – besta vörnin þegar mest á reynir.

Blása út á aðeins 0,01 sekúndu og eru hönnuð og framleidd að fullu í Frakklandi.

📞 Hafðu samband í síma 780 1881 eða 861 1168 og við finnum Helite vesti sem hentar þér.

📦 Sendum um allt land

Address

Hlíðarendi 22 í Spretti
Kópavogur
203

Telephone

+3547801881

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when BROKK netverslun hestamannsins posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to BROKK netverslun hestamannsins:

Shortcuts

Share