21/09/2026
Í tilefni af nýopnaðri sýningu hér á Gerðarsafni, Valgerður, erum við spennt að kynna nýútgefna bók með leturteikningum eftir myndlistarkonuna og kennarann Valgerði Briem (1914-2002).
Bókin var unnin og hönnuð af Hrefnu Sigurðardóttur, en Valgerður Briem hugðist gefa leturteikningar sínar út á sínum tíma í svokallaðri Stafabók fyrir útsaum, þar sem notendur gátu valið sér letur fyrir útsaumsverkefni.
Stafabókin kom ekki út á sínum tíma og er þetta í fyrsta sinn sem leturteikningar hennar koma saman út á prenti.