Luxor tækjaleiga og sala

Luxor tækjaleiga og sala Við eigum ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Luxor er opið alla virka daga frá klukkan 9:00-17:00

💡 AVOLITES NÁMSKEIÐ HJÁ LUXOR – 24.–25. ÁGÚSTViltu bæta þig í ljósastýringu og kynnast Avolites betur?Luxor býður til Av...
14/08/2026

💡 AVOLITES NÁMSKEIÐ HJÁ LUXOR – 24.–25. ÁGÚST

Viltu bæta þig í ljósastýringu og kynnast Avolites betur?

Luxor býður til Avolites námskeiðs 24. og 25. ágúst, þar sem Rogier Tork frá Avolites leiðir þátttakendur í gegnum bæði grunnatriði og flóknari aðgerðir í Avolites ljósaborðum og stýrikerfum.

🕤 Námskeiðið hefst kl. 09:30

Fyrir hádegi verður farið yfir grunnatriðin og helstu vinnuaðferðir í Avolites.

Eftir hádegi verður kafað dýpra í kerfið og farið yfir flóknari aðgerðir, verkflæði og möguleika fyrir þá sem vilja taka næsta skref.

Námskeiðið er opið öllum sem vilja breikka þekkingu sína á ljósaborðum og ljósastýringu – hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref með Avolites eða vilt bæta við þig þekkingu.

🎛️ Kennari: Rogier Tork – Avolites
📅 24.–25. ágúst (þú velur hvor dagur hentar)
🕤 Frá kl. 09:30

👉 Skráning fer fram á meðfylgjandi hlekk.
https://forms.gle/iVhaxtHYnmdKofTE7

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Takk kærlega fyrir Bergmál.Luxor sá um hljóð, mynd og ljós á báðum sviðum og tækniteymið okkar sá til þess að allt rúlla...
21/06/2026

Takk kærlega fyrir Bergmál.

Luxor sá um hljóð, mynd og ljós á báðum sviðum og tækniteymið okkar sá til þess að allt rúllaði vel.

Þegar þetta er skrifað eru síðustu græjurnar að fara inn í gáma og sendibíla eftir að hafa verið á Þingvöllum í slétta viku. Það var spennandi áskorun að setja upp viðburð í þjóðgarðinum og honum verður skilað í toppstandi.

Takk allir sem unnu með okkur að því að láta tæknimálin ganga upp og takk til alls þess frábæra listafólks sem kom fram.

Það var geggjað að sjá hvað gestir nutu sín í veðurblíðunni í gær og vonandi sjáum við fleiri svona tónleika á þessum stað í framtíðinni.

Það voru Vignir Örn, Óli Ofur, Júlíus og Teitur sem leiddu verkefnið fyrir okkar hönd.

Við viljum einnig þakka Jakobi og öðrum skipuleggjendum hátíðarinnar fyrir gott samstarf, ásamt KALEO og öllum öðrum sem komu að verkefninu.

Þetta var fjör.

Takk fyrir að velja Luxor. 💙

06.06.26 – Bubbi í höllinni.Þvílík kvöldstund.Að sjá Bubba flytja hvern slagarann á fætur öðrum fyrir framan troðfulla h...
07/06/2026

06.06.26 – Bubbi í höllinni.

Þvílík kvöldstund.

Að sjá Bubba flytja hvern slagarann á fætur öðrum fyrir framan troðfulla höll, þar sem salurinn söng með hverju einasta lagi, var algjörlega mögnuð upplifun.

Á sama tíma fylgdust þúsundir með tónleikunum heima í stofu í beinni útsendingu.

Luxor sá um hljóð-, ljósa- og myndbúnað á tónleikunum og við erum ótrúlega stoltir af því að hafa fengið að taka þátt í þessu sögulega giggi.

Það voru þeir Vignir Örn og Júlíus sem verkefnastýrðu tónleikunum fyrir Luxor og Teitur Ingi var yfir hljóði.

Við viljum þakka Orra, Didda, Pálma, Hauki Páli, Viktori Hólm, hljómsveitinni Laugardalshöll og auðvitað Ísólfi, Valda, Sigurjóni og öllu þeirra teymi fyrir frábært samstarf! Það voru fagmenn í öllum stöðum og verkefnið gekk einstaklega vel.

Og það sem skiptir mestu máli: tónleikagestir skemmtu sér konunglega.

Takk fyrir að velja Luxor 💙

📸Magnús Stefán og Mummi Lú

02/05/2026

Meðan þú sefur, breytum við Vikunni yfir í Góða Íslendinga með vinum okkar hjá RÚV. 🤘 Lokaþáttur í kvöld í beinni útsendingu. 🥳 Luxor hljóð, ljós og mynd. Við græjum þetta! 💙

Tékkaðu á Spurningaspretti á Sýn+!Luxor sá um að græja ljós, hljóð og myndbúnað af hæsta gæðaflokki 🔊💡📺Svörin birtast á ...
01/04/2026

Tékkaðu á Spurningaspretti á Sýn+!

Luxor sá um að græja ljós, hljóð og myndbúnað af hæsta gæðaflokki 🔊💡📺

Svörin birtast á Absen 3,9mm LED skjá í gólfinu, en spurningarnar á Absen 2,9mm LED skjá

Leikmyndin er hönnuð af Vigni Erni og Björvini Harðarsyni

Lýsing: Alfreð Sturla, Davíðs Almarsson og Karls Sigurðsson
Ágúst Ingi sá síðan um keyrslu á ljósum, grafík og hljóðmynd.

Takk fyrir að velja Luxor 💙

20/03/2026

Laufey var stórkostleg á sviði ✨🎶
LUXOR sá um hljóð, ljós, svið, skjái og margt fleira – og við erum virkilega stoltir af þessum tónleikum. 🙌

Kærar þakkir til Senu fyrir traustið og frábært samstarf 🤝

Takk fyrir að velja LUXOR 💙

Við óskum Birni og öllu teyminu sem komu að stórtónleikunum í Laugardalshöll innilega til hamingju með verðlaunin Viðbur...
19/03/2026

Við óskum Birni og öllu teyminu sem komu að stórtónleikunum í Laugardalshöll innilega til hamingju með verðlaunin Viðburður ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum

Kærar þakkir fyrir frábært samstarf og fyrir að velja Luxor 💙

Það var einnig ánægjulegt að sjá að tónleikar Kaleo – Vor í Vaglaskógi voru tilnefndir, en Luxor sá einnig um tæknimálin þar 🎤

Áfram íslensk tónlist – og áfram íslenskt tæknifólk! 🇮🇸✨

Kæru vinir, nær og fjær – takk fyrir frábært ár! 🎉✨2025 var fullt af skemmtilegum verkefnum og við erum endalaust þakklá...
31/12/2025

Kæru vinir, nær og fjær – takk fyrir frábært ár! 🎉✨

2025 var fullt af skemmtilegum verkefnum og við erum endalaust þakklát fyrir alla þá sem velja Luxor 💙

Við enduðum árið á frábærum tónleikum Retro Stefson í Valsheimilinu 🎶 og svo auðvitað Kryddsíld í beinni á Sýn 📺🔴

Nú hefst 2026 á fullri ferð 🚀
Takk og aftur takk!

Vitringarnir þrír hafa sýnt fyrir fullu húsi í desember í Hörpu ✨Virkilega gaman að segja frá því að fullt af ljósum, tj...
19/12/2025

Vitringarnir þrír hafa sýnt fyrir fullu húsi í desember í Hörpu ✨
Virkilega gaman að segja frá því að fullt af ljósum, tjöld o.fl. komu frá Luxor 💡
Tónleikarnir vígðu líka glænýtt d&b CCL hljóðkerfi frá Luxor.
Sýningin er stórskemmtileg og við erum afskaplega stoltir að fá að vera partur af showinu ⭐
Við þökkum Bjögga, Hörpu, Davíð og Þórhalli – og að sjálfsögðu Vitringunum – kærlega fyrir samstarfið 🤝
Takk fyrir að velja Luxor 💙
📸Mummi Lú

Address

Vesturvör 32B
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Luxor tækjaleiga og sala posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share