Ístak hf.

Ístak hf. Ístak er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa tæplega 500 manns.

Nýlega bættist rafdrifinn Mercedes-Benz eActros 600 við tækjaflota Ístaks.Um er að ræða þriggja öxla 6x2 dráttarbíl sem ...
20/08/2026

Nýlega bættist rafdrifinn Mercedes-Benz eActros 600 við tækjaflota Ístaks.

Um er að ræða þriggja öxla 6x2 dráttarbíl sem verður nýttur í fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins og markar mikilvægt skref í áframhaldandi orkuskiptum Ístaks. Með tilkomu bílsins getur Ístak fært rafvæðinguna inn á nýtt svið starfseminnar og dregið úr notkun jarðefnaeldsneytis í þungaflutningum.

Ístak hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að nýta innlenda, endurnýjanlega orku þar sem því verður við komið. Í Stapafellsnámu hefur stór hluti efnisvinnslunnar þegar verið rafvæddur, með tilheyrandi samdrætti í notkun jarðefnaeldsneytis.

Nýi dráttarbíllinn er eðlilegt framhald þeirrar vegferðar og færir orkuskiptin úr staðbundinni efnisvinnslu yfir í flutninga. Ávinningurinn felst því ekki eingöngu í einum nýjum bíl í flotanum. Með fjárfestingunni byggir Ístak upp þekkingu og reynslu sem nýtist við frekari endurnýjun tækjaflotans, dregur úr losun í eigin starfsemi og eykur möguleika fyrirtækisins á að sinna verkefnum með hagkvæmari og umhverfisvænni hætti. eActros 600 er búinn 621 kWh LFP-rafhlöðum og er hannaður fyrir krefjandi þungaflutninga. Það verður því áhugavert að sjá hvernig bíllinn reynist í daglegum rekstri Ístaks og hvaða tækifæri reynslan af honum skapar fyrir næstu skref í orkuskiptum fyrirtækisins.

Verkefnið er styrkt af Loftlags- og orkusjóði.

Framkvæmdir við stækkun hjúkrunarheimilisins Sóltúns ganga vel.Með stækkuninni fjölgar hjúkrunarrýmum úr 92 í 159.Stálvi...
18/08/2026

Framkvæmdir við stækkun hjúkrunarheimilisins Sóltúns ganga vel.

Með stækkuninni fjölgar hjúkrunarrýmum úr 92 í 159.

Stálvirkið er nú allt komið upp og álmur hússins hafa að stærstum hluta verið lokaðar. Í næsta áfanga verður miðhluti hússins og tæknirými á 5. hæð klárað.

Samhliða þessu er unnið að gluggaísetningu, klæðningum og öðrum verkþáttum utanhúss.

Nýtt hjúkrunarheimili var vígt við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði föstudaginn 14. ágúst 2026. Nýbyggingin sem nú hefur ve...
17/08/2026

Nýtt hjúkrunarheimili var vígt við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði föstudaginn 14. ágúst 2026.

Nýbyggingin sem nú hefur verið tekin í notkun er fyrri áfangi verksins þar sem tekin hafa verið í notkun 20 sjúkrarými. Verkefnið fól í sér bæði viðbyggingu við Skjólgarð og umfangsmiklar endurbætur á eldra húsnæði heimilisins þar sem gert var ráð fyrir 10 sjúkrarýmum til viðbótar.

Ístak kom að verkinu sem stýriverktaki í lok síðasta árs eftir að verkkaupi hafði rift verksamningi við þáverandi aðalverktaka.

Nýtt fjölnota íþróttahús í Borgarnesi hefur nú náð mikilvægum áfanga. Þann 10. ágúst fór fram öryggisúttekt á nýja húsin...
11/08/2026

Nýtt fjölnota íþróttahús í Borgarnesi hefur nú náð mikilvægum áfanga. Þann 10. ágúst fór fram öryggisúttekt á nýja húsinu sem gekk afar vel og voru engar athugasemdir skráðar. Virkilega ánægjulegt.

Borgarbyggð hefur í kjölfarið tekið húsið formlega í notkun. Mannvirkið mun strax byrja að þjóna nærsamfélaginu en um næstu helgi mun fara þar fram glæsilegt frjálsíþróttamót í húsinu.

Við hjá Ístaki þökkum Borgarbyggð fyrir frábært samstarf og óskum íbúum til hamingju með nýja aðstöðu.

Heimasíða Ístaks hefur fengið andlitslyftingu á undanförnum mánuðum. Síðan hefur verið einfölduð og lögð áhersla á að ge...
22/06/2026

Heimasíða Ístaks hefur fengið andlitslyftingu á undanförnum mánuðum. Síðan hefur verið einfölduð og lögð áhersla á að gera hana eins aðgengilega og notendavæna og kostur er.

Enn er unnið að því að bæta inn þeim fjölmörgu verkefnum sem Ístak hefur komið að í gegnum árin og fínstilla söguna okkar. Við vonum að nýja síðan komi að góðum notum þegar ykkur vantar upplýsingar um Ístak.

Endilega kíkið við:

Ístak er leiðandi verktakafyrirtæki í byggingariðnaði. Við bjóðum fjölbreytt verkefni. Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar.

Við leitum að öflugum tæknimanni sem vill setja mark sitt á spennandi verkefni og starfa með framúrskarandi teymi þar se...
09/06/2026

Við leitum að öflugum tæknimanni sem vill setja mark sitt á spennandi verkefni og starfa með framúrskarandi teymi þar sem öryggi og gæði eru ávallt í fyrirrúmi.

Nánari upplýsingar um starfið má finna hér -

Viltu taka þátt í stórum og krefjandi framkvæmdum með einu stærsta og framsæknasta verktakafyrirtæki landsins? Hjá Ístaki leggjum við metnað í að byggja upp innviði framtíðarinnar í kraftmiklu, öruggu og lausnamiðuðu umhverfi. Við leitum að öflugum tæknimanni sem vill setja...

Við leitum að stjórnanda í framkvæmdum.Starfið byggir á grunni tæknivinnu en felur í sér víðtækari ábyrgð á mannafla, gæ...
09/06/2026

Við leitum að stjórnanda í framkvæmdum.

Starfið byggir á grunni tæknivinnu en felur í sér víðtækari ábyrgð á mannafla, gæða- og öryggismálum auk yfirumsjónar með stærri verkhlutum. Þú munt vinna náið með staðarstjórum og öflugu teymi okkar að því að tryggja að verkefni skili sér í hæsta gæðaflokki og á réttum tíma.

Nánari upplýsingar hér -

Viltu taka þátt í að leiða stór og krefjandi verkefni hjá einu af framsæknustu og öflugustu verktakafyrirtækjum landsins? Hjá Ístaki leggjum við áherslu á skapandi og lausnamiðað vinnuumhverfi þar sem öryggi og velferð starfsfólks er alltaf í fyrirrúmi. Við erum stolt af þei...

Öryggisdagur Ístaks var haldinn þann 29. maí sl. Markmið dagsins er að minna á mikilvægi skipulegs vinnuverndarstarfs me...
08/06/2026

Öryggisdagur Ístaks var haldinn þann 29. maí sl. Markmið dagsins er að minna á mikilvægi skipulegs vinnuverndarstarfs með því að brjóta upp hefðbundna dagskrá og gera eitthvað eftirminnilegt saman, með öryggi og vinnuvernd í forgrunni.

Í tilefni dagsins var boðið upp á fræðslu, samtöl og æfingar á vinnustöðum Ístaks vítt og breitt um landið sem og á Grænlandi. Þemað í ár var Viðbragðsgeta vegna óvæntra atburða, þar sem lögð var áhersla á að rýna viðbragðsáætlanir á hverjum stað ásamt því að æfa viðbragð við hinum ýmsu ógnum í umhverfinu. Í starfsemi Ístaks eru fjölmörg atriði sem þarf að huga að, til dæmis bruni í byggingum, bruni í vélum og tækjum, eldsumbrot og vatnsflóð svo eitthvað sé nefnt.

Á mörgum stöðum var skipulögð fræðsla um eldvarnir og viðbrögð við bruna þar sem bæði starfsfólk Ístaks og undirverktaka okkar fengu að spreyta sig á notkun slökkvitækja og annars slökkvibúnaðar. Til að kanna viðbragðsgetu voru haldnar rýmingaræfingar þar sem skrifstofuhúsnæði, vinnubúðir og heilu vinnusvæðin voru rýmd. Þess ber að geta að sum vinnusvæðin okkar spanna tugi kílómetra en með góðu skipulagi og upplýsingaflæði tókst að rýma þau hratt og vel.

Dagurinn heppnaðist vel og við höfum bætt við okkur bæði nýrri þekkingu og reynslu sem getir okkur enn betur í stakk búin til að takast á við óvænta atburði. Öryggisdagurinn bauð ekki síður upp á tækifæri til að rýna enn betur á hverjum stað og hvaða áskoranir eru fyrir hendi í vinnuumhverfinu og mikil umræða var um fyrri atvik og hvernig megi fyrirbyggja sambærileg atvik í framtíðinni.

Við viljum þakka sérstaklega þeim sem komu að verkefninu með okkur, bæði leiðbeinendum og þeim slökkviliðum sem komu að fræðslunni og gerðu daginn enn eftirminnilegri.

Myndir: Víðsvegar af vinnustöðum Ístaks.

Ístak hefur á undanförnum misserum lagt ríka áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar með markvissri rafv...
20/05/2026

Ístak hefur á undanförnum misserum lagt ríka áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar með markvissri rafvæðingu í starfsemi sinni, þ. á m. við efnisvinnslu í Stapafellsnámu. Í námunni er nú unnið með 100% hreinni íslenskri raforku, sem er stórt skref í átt að sjálfbærari rekstri félagsins.

Umfangsmikil uppbygging hefur orðið á innviðum rafmagns á svæðinu og hefur m.a. verið tekin í notkun ný 1.250 Ampera heimtaug, settur hefur verið upp sérstakur heimtaugargámur fyrir hleðslustöð og dreifingu raforku innan svæðisins auk þess sem komið hefur verið fyrir 200 kW DC hraðhleðslustöð til hleðslu á vinnuvélum, svo sem hjólaskóflum og dráttarbílum.

Mölun steinefna með rafmagni eingöngu hófst í maí 2026 í samstarfi við Skútaberg en kónbrjótsamstæðan á svæðinu er að fullu rafdrifin auk þess sem rafknúin LiuGong hjólaskófla annast efnisflutninga að og frá brjótum. Eftir því sem best er vitað er þetta í fyrsta sinn sem efnisvinnsla af þessu tagi er framkvæmd með þessum hætti hér á landi, þ.e. að fullu rafknúin.

Með rafvæðingu efnisvinnslunnar er dregið umtalsvert úr umhverfisáhrifum af námvinnslu á svæðinu og má áætla að við vinnslu um 30.000 m³ af efni sparist um 75.000 lítrar af jarðefnaeldsneyti sem samsvari losun á um 201 tonni af CO2. Reynslan af rafdrifinni LiuGong 870 hjólaskóflu hefur reynst afar góð og hefur vélin staðið undir öllum væntingum í krefjandi aðstæðum við námuvinnsluna.

Fram undan eru jafnframt frekari áfangar í rafvæðingu starfseminnar en um mitt ár 2026 tekur Ístak í notkun 100% rafdrifinn dráttarbíl með malarvagni. Með tilkomu hans verður unnt að flytja efni úr námunni með innlendri, endurnýjanlegri orku og verður efnisvinnsla í námunni þá að fullu rafknúin, þ.e. allt frá vinnslu til afhendingar.

Verkefnið er styrkt af Loftlags- og orkusjóði.

Address

Bugðufljót 19
Mosfellsbær
270

Opening Hours

Monday 08:15 - 16:00
Tuesday 08:15 - 16:00
Wednesday 08:15 - 16:00
Thursday 08:15 - 16:00
Friday 08:15 - 16:00

Telephone

5302700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ístak hf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ístak hf.:

Shortcuts

Share