Veiðiflugur

Veiðiflugur Veiðiflugur er veiðivöruverslun sem sérhæfir sig í innflutningi og sölu á fluguveiðibúnaði.
(261)

LOOP Ström flugustangirnar eru komnar í Veiðiflugur!Ström byggir á 7X-tækni LOOP og M40X koltrefjum sem skila sér í öflu...
24/08/2026

LOOP Ström flugustangirnar eru komnar í Veiðiflugur!

Ström byggir á 7X-tækni LOOP og M40X koltrefjum sem skila sér í öflugum og einstaklega nákvæmum stöngum. Hver stöng í seríunni hefur sitt ákveðna hlutverk, en sameiginlegt með þeim öllum er lág þyngd, frábært jafnvægi, nákvæm línustjórn og kraftur þegar á reynir.

Það er þó erfitt að lýsa Ström til fulls með tæknilegum staðreyndum. Þetta eru einfaldlega stangir sem þú þarft að prófa!

Viltu verða meðal þeirra fyrstu til að prófa nýju LOOP Ström flugustangirnar?Þriðjudaginn 18. ágúst, milli kl. 14 og 17,...
17/08/2026

Viltu verða meðal þeirra fyrstu til að prófa nýju LOOP Ström flugustangirnar?

Þriðjudaginn 18. ágúst, milli kl. 14 og 17, verður sérstakur LOOP eftirmiðdagur í Veiðiflugum þar sem nýju LOOP Ström flugustangirnar verða frumsýndar í Evrópu.

Ström er ný stangaröð frá LOOP sem væntanleg er á markað í lok ágúst. Stangirnar eru byggðar á 7X-tækni LOOP, sömu grunntækni og hefur verið notuð í 7X stöngunum sem hafa notið fádæma vinsælda undanfarin ár. Með Ström hefur LOOP þróað þessa nálgun enn frekar og notar fullkomnari kolefnisuppbyggingu en áður í stangaframleiðslu sinni.

Fulltrúar LOOP verða á staðnum, þar á meðal Eoin Fairgrieve, yfirhönnuður flugustanga hjá LOOP, og Steve Kelly, sölustjóri LOOP í Evrópu. Þetta er því einstakt tækifæri til að skoða og prófa Ström stangirnar áður en þær koma á markað í lok ágúst – og vera um leið á meðal þeirra fyrstu í heiminum til að fá þær í hendurnar.

Þeir Eoin og Steve verða einnig með fleiri nýjar LOOP-vörur í farteskinu sem eru væntanlegar á markað á næstunni, þar á meðal Classic X fluguhjólið, sem var frumsýnt í Bandaríkjunum á dögunum.

Nú er rétti tíminn til að skoða nýjungarnar, prófa græjurnar, spjalla við fulltrúa LOOP og fá innsýn í það sem er fram undan hjá LOOP.

Léttar veitingar verða í boði.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Við erum á leið í veiði! 🎣Verslun Veiðiflugna verður því lokuð um verslunarmannahelgina, laugardag, sunnudag og mánudag....
31/07/2026

Við erum á leið í veiði! 🎣
Verslun Veiðiflugna verður því lokuð um verslunarmannahelgina, laugardag, sunnudag og mánudag.

Við opnum aftur á venjulegum tíma þriðjudaginn 4. ágúst kl. 09:00.

Hafið það sem allra best og njótið helgarinnar!

Á undanförnum misserum höfum við kynnt til leiks flugulínur sem eru hannaðar með íslensk vatnasvæði í huga og framleidda...
22/07/2026

Á undanförnum misserum höfum við kynnt til leiks flugulínur sem eru hannaðar með íslensk vatnasvæði í huga og framleiddar sérstaklega fyrir Veiðiflugur. Viðtökurnar hafa verið frábærar og línurnar getið sér gott orð fyrir áreiðanleika, hagstætt verð og langa endingu.

Flugulínurnar bera allar nöfn íslenskra veiðiáa og nú bætist ný lína í hópinn – Fitjá.

Fitjá er öflug flotlína fyrir einhendur með stuttum, framþungum skothaus. Hún er sérstaklega hönnuð til að hlaða stöngina hratt og örugglega og þannig gera fluguköstin bæði einfaldari og nákvæmari.

Línan kastast auðveldlega fram og hentar vel bæði í yfirhandarköst og veltiköst. Hönnun skothaussins gerir veltiköstin sérlega auðveld, sem kemur sér vel þegar pláss fyrir bakkast er takmarkað. Þrátt fyrir stuttan og öflugan haus leggst Fitjá mjúklega á yfirborðið og skilar markvissum og nákvæmum köstum. Hún hentar einkar vel í lax- og silungsveiði í straumvatni en nýtist einnig vel í stöðuvötnum.

Helstu eiginleikar:
• Flotlína með stuttum skothaus
• Hleður stöngina hratt og auðveldar köstin
• Kastast auðveldlega og leggst mjúklega á yfirborðið
• Hentug fyrir byrjendur og reyndari veiðimenn
• Tvílituð hönnun sem auðveldar að finna réttan hleðslupunkt
• Sterkar lykkjur á báðum endum
• Fáanleg í línuþyngdum #5– #8

Fitjá er lína sem einfaldar veiðina. Hún er auðveld í köstum, fjölhæf í notkun og hentar jafnt byrjendum sem reyndum veiðimönnum. Við erum mjög ánægð með útkomuna og teljum að hún eigi eftir að reynast íslenskum veiðimönnum afar vel.

Fitjá er nú fáanleg í netverslun Veiðiflugna og í verslun okkar á Langholtsvegi 111. Komdu við, prófaðu línuna og fáðu ráðgjöf um val og uppsetningu.

Kærar þjóðhátíðarkveðjur frá okkur í Veiðiflugum. Megi dagurinn verða ánægjulegur 🇮🇸
17/06/2026

Kærar þjóðhátíðarkveðjur frá okkur í Veiðiflugum. Megi dagurinn verða ánægjulegur 🇮🇸

12/06/2026

Í þessu myndbandi fer Klaus Frimor yfir einhenduköst á skýran og einfaldan hátt. Klaus er einn reyndasti flugukastkennari heims og hefur í áratugi kennt veiðimönnum að ná betri tökum á köstunum.

Smá æfing getur skilað sér vel í næstu veiðiferð!

Á heimasíðu Veiðiflugna má finna fleiri kennslumyndbönd með Klaus þar sem farið er yfir tvíhenduköst, flugulínur, tauma og veiðihnúta.

Horfðu á öll myndböndin hér:
https://veidiflugur.is/fluguveidi-med-klaus-frimor/

Loop Onka jakkinn er mættur í þremur ferskum litum og nú á frábæru verði!Onka er léttur og hlýr einangrunarjakki með Pri...
29/05/2026

Loop Onka jakkinn er mættur í þremur ferskum litum og nú á frábæru verði!

Onka er léttur og hlýr einangrunarjakki með PrimaLoft® Gold fyllingu sem heldur vel á þér hita í fjölbreyttum aðstæðum. Jakkinn er með nýtt og bætt snið, góða vasa, stillanlega hettu og vatnshelda YKK rennilása.

Fullkominn í veiðina, útivistina eða til daglegra nota.
Verð aðeins 39.900 kr.

Nýja Loop Trak stangaserían er komin í hús!Trak er hönnuð fyrir veiðimenn sem vilja raunveruleg gæði á hagstæðu verði. H...
21/05/2026

Nýja Loop Trak stangaserían er komin í hús!
Trak er hönnuð fyrir veiðimenn sem vilja raunveruleg gæði á hagstæðu verði. Hvort sem þú veiðir með einhendu eða tvíhendu finnur þú Loop Trak stöng sem hentar þínum veiðistíl.

Langar þig að taka fluguköstin á næsta stig?Í maí bjóða Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðiflugur upp á flugukastnámsk...
05/05/2026

Langar þig að taka fluguköstin á næsta stig?
Í maí bjóða Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðiflugur upp á flugukastnámskeið með Klaus Frimor, einum fremsta kastkennara heims.

Smáir hópar og persónuleg kennsla. Námskeið sem henta bæði byrjendum og lengra komnum.

Takmarkað pláss.
Nánar á veidiflugur.is/flugukastnamskeid

Við hjá Veiðiflugum höfum gert nýjan samning við LOOP sem skilar umtalsvert lægra innkaupsverði. Þann ávinning látum við...
31/03/2026

Við hjá Veiðiflugum höfum gert nýjan samning við LOOP sem skilar umtalsvert lægra innkaupsverði. Þann ávinning látum við ganga beint til okkar viðskiptavina og höfum þegar lækkað verð á nær öllum LOOP vörum um allt að 33 prósent!

Á tímum þar sem margar vörur hækka í verði er sérstaklega ánægjulegt að geta farið í hina áttina.

Hér eru nokkur dæmi um ný verð:

• LOOP 7X einhendur: 159.900 kr.
(áður 179.900 kr. – 11% lækkun)

• LOOP Torne vöðlujakkar: 89.900 kr.
(áður 119.900 kr. – 25% lækkun)

• LOOP Onka Primaloft jakkar: 39.900 kr.
(áður 59.900 kr. – 33% lækkun)

• LOOP Z1 einhendur: 94.900 kr.
(áður 109.900 kr. – 14% lækkun)

• LOOP Opti fluguhjól: 78.900 kr.
(áður 89.900 kr. – 12% lækkun)

Við hlökkum til veiðisumarsins fram undan!
Gleðilega páska 🐣

Address

Langholtsvegur 111
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 18:00
Saturday 10:00 - 16:00

Telephone

+3545271060

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Veiðiflugur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Veiðiflugur:

Shortcuts

Share

Category