Rotax á Íslandi

Rotax á Íslandi Rotax flugvélamótorar, varahlutir, rekstrarvara og þjónusta á Íslandi

Fyrsti Rotax 916iS mótor á ÍslandiNýr og öflugur Rotax 916iS flugvélamótor er nú kominn til landsins — heil 160 hestöfl ...
27/02/2026

Fyrsti Rotax 916iS mótor á Íslandi
Nýr og öflugur Rotax 916iS flugvélamótor er nú kominn til landsins — heil 160 hestöfl af nútímatækni með innspýtingu og túrbóhleðslu.

Mótorinn fer í nýja Safari Aircraft flugvél sem nú er í smíðum í skúrnum, þar sem draumur er að verða að veruleika.
Vélin TF-SFR Safari með hámarks flugtaksþunga 750 Kg.
Sjá KFA https://kitplanesforafrica.co.za/

Stór áfangi í íslensku flugi og spennandi tímar fram undan.

Til hamingju, Stefan Fridleifsson með nýja mótorinn!

Rotax gaf út nýtt Service Information bréf 7. september 2023 sem fjallar um olíu og kælivökva í Rotax mótorum.Titillinn ...
23/09/2023

Rotax gaf út nýtt Service Information bréf 7. september 2023 sem fjallar um olíu og kælivökva í Rotax mótorum.
Titillinn er: "Selection of suitable operating fluids for Rotax Engine Type 916 i (Series), 915 i (Series), 912 i (Series), 912 and 914 (Series)"
https://rotax.my.salesforce-sites.com/DocumentsSearch/sfc/servlet.shepherd/version/download/0685c00000N96R6AAJ
Í þessu upplýsingbréfi er gefið upp að olían fyrir alla Rotax 912,914 og 915 er Aeroshell Sport Plus 4, hvort sem notað er Avgas eða bílabensín.
Þessi olía fæst hjá Skeljungi Skútuvogi 1.
Rotax kynnti nýja olíu á sama tíma og Rotax 916 var kynnt til sögunnar.
Olían er "XPS 5W-50 Full Synthetic Aviation Engine oil".
Þessi olía er bara gefin upp fyrir Rotax 916 í upplýsingabréfinu.

Margir eru að sinna ársskoðunum á sínum vélum núna.Fyrir Rotax 912 er 100 tíma skoðun/ársskoðun það sem allir þurfa að g...
31/05/2023

Margir eru að sinna ársskoðunum á sínum vélum núna.
Fyrir Rotax 912 er 100 tíma skoðun/ársskoðun það sem allir þurfa að gera.
Auk þess er 5 ára líftími á nokkrum hlutum, fyrst og fremst öllum gúmmíum í og við mótor.
Sjá meðfylgjandi síðu í Line maintenance manual 912.
Allar handbækur og skjöl Rotax eru aðgengileg á www.flyrotax.com
Line Maintenance manual 912 er í heild sinni hér:
https://rotax.my.salesforce-sites.com/DocumentsSearch/sfc/servlet.shepherd/version/download/0685c00000BM5VqAAL?asPdf=false

Rotax kynnti nýjan flugvélamótor í dag, Rotax 916is sem er 160 hestöfl og aðeins 86 kg.Upplýsingar: https://www.flyrotax...
28/03/2023

Rotax kynnti nýjan flugvélamótor í dag, Rotax 916is sem er 160 hestöfl og aðeins 86 kg.
Upplýsingar:https://www.flyrotax.com/assets/files/products/Rotax-916iSc-Product_Folder.pdf

Allir Rotax flugvélamótorar nota sömu kerti, hvort sem það er 912, 912s eða 914.Auk þess er sama kerti í 582 mótor frá 2...
05/05/2022

Allir Rotax flugvélamótorar nota sömu kerti, hvort sem það er 912, 912s eða 914.
Auk þess er sama kerti í 582 mótor frá 2017 og nýrri.
Kertið er ROTAX 297-656

Eldri mótorar hafa notað NGK kerti, mismunandi eftir módelum hvaða kerti á við, en nú er sama kerti fyrir alla 582 (nýrri), 912, 912s og 914
Þetta Rotax kerti er ætlað til notkunar í 400 tíma en NGK kerti eru með mun skemmri notkun.
Fyrir lang flesta fisflugmenn þá mun eitt kertasett duga í fjölda ára.
Athugið að ekki má blanda saman tegundum kerta í einn mótor, öll kerti þurfa að vera af sömu gerð.

Flotholt í ábyrgð eru komin fyrir:TF-ASK, TF-METTF-125TF-179TF-180TF-203TF-222TF-149Flotholtin verða settar í vélar á He...
29/07/2021

Flotholt í ábyrgð eru komin fyrir:
TF-ASK,
TF-MET
TF-125
TF-179
TF-180
TF-203
TF-222
TF-149
Flotholtin verða settar í vélar á Heiði þar sem við á (30.7.2021)
Sjá leiðbeiningar sem vísað er til hér á síðunni.

Rotax leiðbeiningar vegna skipta á flotholtum þar sem við á.Mandatory við næstu skoðun, samt innan árs frá útgáfu SB sem...
27/01/2021

Rotax leiðbeiningar vegna skipta á flotholtum þar sem við á.
Mandatory við næstu skoðun, samt innan árs frá útgáfu SB sem þýðir að það þurfi að vera gert fyrir 03.12.2021.
Ef viðkomandi vél er með bensínleka eða gangtruflanir í hægagangi þá skal skipta fyrir næsta flug.
Service Bulletin númer eru: SB-912-074/ SB-914-056/ SB-2ST-004
SB fyrir Certified eru hér https://rotax-docs.secure.force.com/DocumentsSearch/sfc/servlet.shepherd/version/download/0681H00000FTOhkQAH?asPdf=false
SB fyrir Non Certified eru hér: https://rotax-docs.secure.force.com/DocumentsSearch/sfc/servlet.shepherd/version/download/0681H00000FTOhlQAH?asPdf=false
Raðnúmer vélanna sem við á eru í þessum skjölum
https://www.youtube.com/watch?v=WVhq3vO1NM4

This new Rotax TECH TIPS video will inform you about the carburetor float exchange on ROTAX 912, 914 and 2-stroke aircraft engines and will enrich the conten...

Address

Reykjavík
104

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Rotax á Íslandi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Rotax á Íslandi:

Shortcuts

Share