08/03/2023
Það er hrikalegur gangur í "Allt á að Fara" útsölunni og stundum slegist. Margar vörur að klárast en enn fullt til af gourmet gúmmelade á geðveikum afslætti. Drífið ykkur á staðinn!"
VERSLUNIN HÆTTIR! ALLT Á AÐ SELJAST Í SAUMU!
Það er með miklum trega að við tilkynnum ykkur að við þurfum að loka Saumu ehf, Hátúni 12.
Þess vegna setjum við mikinn afslátt í gang svo að okkar viðskiptavinir geti komið og gert góð kaup. Erum við að tala um 50-70% afslátt að efnum og allt á að seljast því við erum á móti sóun á svona gæðavöru.
Ástæður fyrir lokuninni eru einfaldar, dæmið hreinlega gengur ekki upp. Við settum Saumu í gang fyrir fjórum og hálfu ári síðan og hefur gengið á ýmsu síðan. Salan var ekki mikil í byrjun en fór stigmagnandi en samt var maður alltaf í basli með að borga alla reikninga.
Hefur búðardrengurinn vakið og sofið yfir þessu með góðri hjálp móður sinnar en lítið verið hægt að borga út í laun. Að vinna á hverjum einasta degi, líka á laugardögum og sunnudögum eins og búðardrengurinn gerði fyrstu tæp 3 árin er slítandi. Ætlunin var að ráða manneskju í fulla vinnu til að létta undir en það hefur ekki verið hægt og verður enn erfiðara með nýjum kjarasamningum.
Einnig hefur allt hækkað mikið, verð að utan, flutningsgjöld rokið upp og hækkun á húsnæðisleigu, ásamt því að salan hefur hrunið undanfarna fimm mánuði. Því verður að segja stopp núna áður en allt er komið í óefni.
Búðardrengurinn hefur unnið í vefnaðarvörubransanum frá unga aldri og brennur fyrir því að bjóða uppá góða vöru á skikkanlegu verði ásamt því að hjálpa íslenskum hönnuðum ungum sem gömlum. En hann getur ekki lifað á loftinu einu saman.
En drífið ykkur nú á staðinn og gerið heljarinnar góð kaup.
Vinsamlega deilið og látið alla vita!