Safnbúð Listasafns Íslands / Gallery Shop, National Gallery of Iceland

Call Directions Website Contact the business

Safnbúð Listasafns Íslands / Gallery Shop, National Gallery of Iceland Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara. Art books, cards, posters, Icelandic arts and design and giftware.

Megináhersla Safnbúðarinnar er kynning og sala á útgáfum safnsins, listaverkakortum og plakötum. Þar er einnig fáanleg listræn gjafavara tileinkuð söfnum, úrval íslenskra listmuna og hönnun. Safnbúðin leitast við að upplýsa og auka ánægju safngesta. OPNUNARTÍMAR

Sumar (01.5. - 30.9.) mánudaga- sunnudaga kl. 10-17
Vetur (01.10. - 30
4.) þriðjudaga - sunnudaga kl. 10-17, lokað mánudaga

Frekari upplýsingar í síma 515 9610 og [email protected]

Breytum og bætum!Safnbúðin okkar á Fríkirkjuveginum er komin í dvala í nokkrar vikur, opnum svo aftur nýja og ferska búð...
01/02/2024

Breytum og bætum!
Safnbúðin okkar á Fríkirkjuveginum er komin í dvala í nokkrar vikur, opnum svo aftur nýja og ferska búð að breytingum loknum.
Litla fallega búðin okkar í Safnahúsinu á Hverfisgötunni er opin og svo er auðvitað vefverslun okkar á www.listasafn.is opin allan sólahringinn.

Listasafn Íslands er þjóðlistasafn og leggur megináherslu á 19. og 20. aldar list, íslenska og erlenda. Það á merkasta safn íslenskra verka hér á landi og eftir alla helstu myndlistarmenn þjóðarinnar.

Hún er komin !Listasafn Íslands kynnir veglega sýningarskrá fyrir sýninguna Egill Sæbjörnsson og óendanlegir vinir alhei...
05/01/2024

Hún er komin !

Listasafn Íslands kynnir veglega sýningarskrá fyrir sýninguna
Egill Sæbjörnsson og óendanlegir vinir alheimsins.
Skráin er ríkulega myndskreytt og inniheldur aðfaraorð Ingibjargar Jóhannsdóttur safnstjóra, grein eftir sýningarstjórann
Arnbjörgu Maríu Danielsen, grein eftir listfræðinginn Margréti Elísabetu Ólafsdóttur ásamt ítarlegu yfirliti yfir kartakterssköpun listamannsins og grein eftir Ágústu Oddsdóttur móður Egils.

Þessi glæsilega sýningarskrá er nú fáanleg hér hjá okkur á Fríkirkjuveginum en einnig er hægt að panta hana í vefverslun okkar www.listasafn.is

23/12/2023

Starfsfólk Listasafns Íslands sendir bestu jóla- og nýárskveðjur með þakklæti fyrir árið sem er að líða ✨
Opnunartími yfir hátíðirnar:
⁠Lokað 24. og 25. desember⁠
Lokað 31. desember og 1. janúar
Opið frá 13-17 26. desember og 2. janúar

Glæsilegt úrval af  listaverkabókum.Tilvaldar í jólapakkann.
17/12/2023

Glæsilegt úrval af listaverkabókum.
Tilvaldar í jólapakkann.

Við erum stoltir söluaðilar Kærleikskúlunnar.Hún er komin til okkar á Fríkirkjuveginn.HEIMUR eftir Guðjón Ketilsson er K...
07/12/2023

Við erum stoltir söluaðilar Kærleikskúlunnar.
Hún er komin til okkar á Fríkirkjuveginn.

HEIMUR eftir Guðjón Ketilsson er Kærleikskúla ársins 2023. Sala Kærleikskúlunnar fer fram í völdum verslunum um land allt dagana 7. - 21. desember og í netverslun SLF. Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til sumarbúða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal.

Bókahátíð í Hörpunni,opið til 17 í dag.Hlökkum til að sjá ykkur!
26/11/2023

Bókahátíð í Hörpunni,
opið til 17 í dag.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Hjartanlega velkomin að kíkja á okkur í Hörpu þar sem við tökum þátt í Bókahátíðinni!Opið laugardag og sunnudag 11-17.
25/11/2023

Hjartanlega velkomin að kíkja á okkur í Hörpu þar sem við tökum þátt í Bókahátíðinni!
Opið laugardag og sunnudag 11-17.

ÍSLENSK LISTASAGA frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar glæsileg gjöf sem gleður.Hér er á ferðinni yfirlitsve...
17/11/2023

ÍSLENSK LISTASAGA frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar glæsileg gjöf sem gleður.
Hér er á ferðinni yfirlitsverk um íslenska myndlist í 5 bindum um rúmlega 400 listamenn skrifaða af 14 höfundum. Verkinu er skipt upp í tímabil og lögð er áhersla á einkenni íslenskrar myndlistar á hverju tímaskeiði, sögulegt samhengi hennar og samband við alþjóðlega listasögu. Í verkinu eru litljósmyndir af á annað þúsund listaverkum.

Þið fáið þetta glæsilega yfirlitsverk í safnbúðinni okkar.
Opið alla daga nema mánudaga frá 10 — 17
Verið velkomin.

Þessa dásamlegu bók fáið þið hjá okkur!Bókin Hugsun um teikninguna  er gefin út í tengslum við samnefnda sýningu á teikn...
15/11/2023

Þessa dásamlegu bók fáið þið hjá okkur!

Bókin Hugsun um teikninguna er gefin út í tengslum við samnefnda sýningu á teikningum Jóhannesar S. Kjarvals sem finna má í listaverkasafni Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar sem Listasafni Íslands hefur verið afhent til framtíðarvörslu.
Sýningarskráin inniheldur aðfaraorð Ingibjargar Jóhannsdóttur, safnstjóra og texta Önnu Jóhannsdóttur, sýningarstjóra ásamt ljósmyndum af úrvali verka sýningarinnar.
Bókin er vönduð og eiguleg þar sem fjallað er um mikilvægan þátt í listsköpun eins ástsælasta listamanns þjóðarinnar.

Bókin er fáanleg í safnbúð Listasafns Íslands og í vefverslun hér:
https://listasafn-islands.myshopify.com/
Verð: 5.900 kr.

Þessa einstöku bók fáið þið í safnbúð okkar og einnig er hægt að panta hana í vefverlsun okkar áwww.listasafn.isFróðleg ...
02/11/2023

Þessa einstöku bók fáið þið í safnbúð okkar og einnig er hægt að panta hana í vefverlsun okkar á
www.listasafn.is

Fróðleg og falleg bók þar sem kynnumst fólkinu er lagði grunninn að íslenskri listasögu um og uppúr 1900 og fram eftir 20. öld. Þetta er einstaklega falleg og vönduð bók fyrir alla fjölskylduna.

Höfundurinn Margrét Tryggvadóttir hefur þýtt fjölmargar bækur og hefur hún hlotið mörg verðlaun og viðurkenningar.

Address

Fríkirkjuvegur 7
Reykjavík
101

Opening Hours

Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00
Saturday 10:00 - 17:00
Sunday 10:00 - 17:00

Telephone

+354 515 9610

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Safnbúð Listasafns Íslands / Gallery Shop, National Gallery of Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Safnbúð Listasafns Íslands / Gallery Shop, National Gallery of Iceland:

Shortcuts

Share

Category