Markaður Samhjálpr flutti í Hólagarð, Lóuhólum 2-4 í janúar 2023. Við erum að taka á móti ýmsum vörum á markaðinn og vegna mikillar sölu vantar okkur allskyns föt og vörur á markaðinn. Ef þú eða fyrirtækið þurfið að losa vörur þá getið þið haft samband við Helgu Pálsdóttur verkefnastjóra markaðsins 842-2030. Markaðurinn er stór liður í fjáröflun fyrir starf Samhjálpar og við þökkum öllum þeim sem hafa styrkt Samhjálp á einn eða anna hátt. Starfsemi Samhjálpar
Markmið Samhjálpar er að veita bjargir til þeirra einstaklinga sem halloka hafa farið í lífinu, vegna sjúkdóma, fátæktar eða annarra samfélagslegra vandamála og með því stuðla að velferð og sjálfsbjörg þeirra. Hjálparstarf Samhjálpar á sér 43 ára sögu og allan þann tíma hafa samtökin staðið vaktina fyrir þá sem minna mega sín eða glíma við áfengis- og vímaefnavanda. Höfuðstöðvar Samhjálpar eru að Skútuvogi 1g, 104 Reykjavík. Þar eru skrifstofur og úthringiver til húsa - einnig hluti forvarna- og eftirmeðferðarstarfsins. Meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot:
Á vegum samtakanna eru rekin ýmis úrræði og ber fyrst að nefna meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot í Mosfellsdal þar sem um 30 einstaklingar eru í meðferð og að jafnaði eru 80 til 90 manns á biðlista. Fjölmargir einstaklingar hafa farið í gegnum áfengis- og vímuefnameðferð í Hlaðgerðarkoti með góðum árangri. Hlaðgerðarkot er oft á tíðum síðasta úrræði vímuefnaneytendanna. Um helmingur þeirra sem koma í meðferð í Hlaðgerðarkoti eru á aldrinum 18 til 39 ára. Ásókn eftir að komast í meðferð í Hlaðgerðarkoti hefur aukist á liðnum árum og biðlisti lengist með hverju ári. Elsti hluti húsnæðisins í Hlaðgerðarkoti er kominn til ára sinna, enda byggður fyrir rúmum 60 árum. Fjármagn Samhjálpar hefur verið nýtt í að hjálpa fólki út úr neyslu og viðhald húsnæðisins hefur því setið á hakanum. Því er mjög brýnt að fara í endurbætur. Samtökin reka einnig eftirmeðferðar- og áfangaheimilið Brú og stuðningsheimili að Miklubraut 18. Um 80 manns er tryggð næturgisting í húsakynnum Samhjálpar á hverri nóttu allan ársins hring.
Á áfangaheimilinu Brú eru 19 einstaklingsíbúðir fullbúnar húsgögnum. Til þess að komast að í áfangahúsinu þurfa umsækjendur að hafa lokið meðferð í Hlaðgerðarkoti. Þeir verða að hafa atvinnu og þurfa að hafa ráðið sig í starf að lágmarki 4 vikum eftir að þeir flytja inn. Markmið þeirrar félagslegu aðhlynningar sem veitt er í áfangaheimilinu er að gera skjólstæðingum kleift að temja sér nýja lífshætti og varanlegt bindindi á eigin ábyrgð. Íbúum er skylt að sækja AA fundi. Stuðningsheimilið að Miklubraut 18 er rekið í samvinnu við Félagsþjónustuna í Reykjavík og er heimili fyrir heimilislausa Reykvíkinga. Á heimilinu er pláss fyrir átta einstaklinga og hefur hver sitt eigið herbergi, utan einn sem hefur til umráða litla einstaklingsíbúð. Önnur aðstaða er sameiginleg. Heimilið er nokkurskonar áfangaheimili en með miklum stuðningi. Heimilismenn eru í virku sambandi við félagsráðgjafa á vegum borgarinnar. Ásamt því á yfirmaður reglulega fundi og einkaviðtöl við heimilismenn. Markmiðið með heimilinu er að styðja þá einstaklinga sem ekki hafa náð bata eftir hefðbundnum meðferðarúrræðum. Kaffistofa Samhjálpar er í Borgartúni 1 en þar er boðið upp á morgunkaffi, meðlæti og heita máltíð í hádeginu, alla daga ársins fyrir utangarðsfólk og aðra þá sem um sárt eiga að binda. Heimsóknir eru um 200 á dag, allt árið um kring. Um 67 þúsund máltíðir voru gefnar á Kaffistofunni árið 2015.