PB 3D Prent og Resin

PB 3D Prent og Resin Alls konar 3D prentaðir hlutir (filament) og resin steypt í mót. Allar verðupplýsingar eru með VSK og án sendingarkostnaðar.

Var að bæta við Minecraft öxum í nokkrum litum (þemum).Axirnar eru 15 x 28 cm stór og 1 cm á þykkt.Litir og heiti eru la...
21/06/2025

Var að bæta við Minecraft öxum í nokkrum litum (þemum).

Axirnar eru 15 x 28 cm stór og 1 cm á þykkt.
Litir og heiti eru lausleg tilvísun i leikinn.
Verð og nánari upplýsingar á https://www.verslun.palli.org/product/minecraft-axe

Ljósker í lithophanePersónulegt ljósker eða með ljósmyndum – LithophaneFallegt og persónulegt ljósker sem lýsir upp minn...
07/04/2025

Ljósker í lithophane

Persónulegt ljósker eða með ljósmyndum – Lithophane

Fallegt og persónulegt ljósker sem lýsir upp minningar þínar með einstökum hætti. Á hverri hlið er þín eigin ljósmynd, alls fjórar myndir, sem þú sendir inn – umbreytt í lithophane (ljósmynd í þrívídd) sem lifnar við þegar lýst er upp innan frá.

Ljóskerið og myndirnar eru prentaðar úr PETG efni og þolir því að standa úti en athuga skal að það er ekki vathsþétt og því gæti ljósið truflast í mikilli bleytu.

Myndir sem sendar eru inn þurfa ekki passa nákvæmlega og eru stækkaðar/minnkaðar/klipptar til eftir þörfum til að þær passi.

Innifalið í kaupunum er rafhlöðuknúið ljós (rafhlöður fylgja) sem situr á botni kersisins og aðgengilegt neðan frá til að kveikja/slökkva eða skipta út rafhlöðum. Ljósið er stillanlegt í 4 mismunandi liti og fimmta stillingin breytir reglulega milli allra litanna.

Botninn á ljóskerinu er 13cm hver hlið. Miðsvæðið er tæpir 10cm. Hæð upp á efsta punkt er 25cm.

Til að skoða verð og upplýsingar: https://www.verslun.palli.org/product/ljosker-lithophane

Fallegur og stílhreinn standur sem merktur er með orðinu „Kort“ – fullkominn fyrir veislur eins og fermingar, brúðkaup e...
06/04/2025

Fallegur og stílhreinn standur sem merktur er með orðinu „Kort“ – fullkominn fyrir veislur eins og fermingar, brúðkaup eða afmæli þar sem gestir vilja skilja eftir kveðju- eða gjafakort.

„Kort“ er í fallegu skrautletri og standa stöðugir á hvítum grunni

Fæst í tveimur litum á stöfunum hvítur eða rauður, báðar með hvítum grunni/botnplötu.

Stærð: u.þ.b. 20 cm á breidd × 5 cm á dýpt

Þessi standur setur punktinn yfir i-ið á skreytingunum og gerir gestum auðvelt að finna hvar þeir geta skilið eftir kort.

P.S Ef það hentar ekki að hafa orðið "Kort" á standinum er sjálfsagt mál að útbúa fleiri útgáfur. Í því tilfelli, endilega senda fyrirspurn.

Til að sjá verð og panta: https://www.verslun.palli.org/product/standur-fyrir-kort

Líkan af Jörðinni varpað á kúlu með Lithophane tækni sem gerir lönd og heimsálfur sýnilegar þegar ljósgjafi er settur á ...
15/03/2025

Líkan af Jörðinni varpað á kúlu með Lithophane tækni sem gerir lönd og heimsálfur sýnilegar þegar ljósgjafi er settur á bakvið.

Kúlan er 15 cm í þvermál.

Með fylgir standur og ljós. Ljósið er rafhlöðuknúið með tveimur AA rafhlöðum (fylgja með) sem endast í nokkra daga ef stöðugt er kveikt á þvi´.Ljósið er sett á sérútbúið sæti á standinum og svo er kúlan sett ofan á standinn.

Ljósið sem fylgir getur gefið nokkra liti sem skipt er á milli með því að þrýsta ofan á ljósið. Ein stillingin er þannig að ljósið skiptir reglulega litum sjálfkrafa. Til að kveikja eða slökkva þá er kúlan tekin af standinum, þrýst á ljósið einu sinni eða oftar til að fá réttan lit og kúlan svo aftur sett ofan á.

Lýsingin er mild og getur vel nýst sem næturljós í herbergi eða gangi.

Hlekkur til að panta: https://www.verslun.palli.org/product/earth-lithophane

Húsnúmerin hafa meira notagildi en bara sem húsnúmer. Meðfylgjandi myndir eru af golfvelli þar sem þeim var fundið hlutv...
15/03/2025

Húsnúmerin hafa meira notagildi en bara sem húsnúmer. Meðfylgjandi myndir eru af golfvelli þar sem þeim var fundið hlutverk og koma bara vel út.

Fyrir þetta verkefni var teikningunni breytt aðeins og fæturnir sem lyfta stafnum um 10mm frá undirlagi voru fjarlægðir, þannig að þeir liggja alveg við yfirborðið. Sá möguleiki að hafa stafina með eða án fóta er kominn í búðina þannig að þið getið valið.

Að auki er ég með verkefni í gangi núna þar sem ég er að teikna stafi fyrir þokkalega langt bæjarnafn þar sem samanstendur af hástöfum, lágstöfum og tölum. Meira um það síðar.

Enn og aftur, endilega senda fyrirspurn ef þið eruð í einhverjum pælingum og þurfið einhverjar sér útfærslur.

Var að breyta hönnun á bókstöfum í húsnúmerum. Mér fannst ekki koma nægilega vel út að vera með bókstafina í hástöfum á ...
21/02/2025

Var að breyta hönnun á bókstöfum í húsnúmerum.

Mér fannst ekki koma nægilega vel út að vera með bókstafina í hástöfum á eftir númerinu og í sömu stærð, þannig að nú eru bókstafir í lágstöfum og í c.a. 73% stærð miðað við tölustafina.

Skapalón fylgja og skal miða við neðri brún skapalóna þegar verið er að setja þetta upp, þá liggja stafir rétt. Broddstafir koma í tveimur hlutum og þá gerir skapalónið ráð fyrir því þannig að broddur eða punktur situr á réttum stað og með sér festingu.

Beinn hlekkur á húsnúmerin í búiðinni er https://www.verslun.palli.org/product/husnumer

Address

Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when PB 3D Prent og Resin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to PB 3D Prent og Resin:

Shortcuts

Share