Kælitækni ehf

Kælitækni ehf Heildsala Kælitækni var stofnað árið 1962 og er því rúmlega fimmtugt. Kælitækni er einnig í samstarfi við ýmsa af þessum birgjum er lítur að þróun og hönnun s.s.

Kælitækni var upphaflega rekið sem þjónustufyrirtæki á sviði kæli-og frystitækni eða þar til 1997 að núverandi eigendur endurskipulögðu reksturinn og hófu sókn á miklu breiðari grundvelli. Viðskiptavinir Kælitækni spanna í dag breiðan hóp sem eru í raun allir sem þurfa á kælingu eða frystingu að halda. Gildir þá einu hvort um er að ræða lausnir í hraðfrysti eða ískerfum fyrir sjávarútveginn og fiskverkunarfyrirtæki, hraðkæla fyrir matvælavinnslur, klakavélar, kæli og frystimublur fyrir hótel og veitingahús eða loftkælikerfi fyrir skrifstofur og tölvurými svo nokkuð sé nefnt. Þá hefur Kælitækni einnig hannað sérstök fiskþurrkunarkerfi fyrir fiskvinnslu með góðum árangri. Þess má einnig geta að Kælitækni hefur yfir 10 ára reynslu í krapakælingu og var meðal brautryðjenda í lausnum með krapa. Opnunartími:
8 - 16 mánudag til föstudags

Lokað um helgar


Kælitækni hefur einnig þjónustað kæliverktaka um árabil og er með öfluga heildsölu. Fyrirtækið vinnur náið með flestum kæliverktökum landsins og veitir þeim ráðgjöf og þjónustu á öllum þeim vörum og tækni sem Kælitækni selur. Vöruframboðið er stöðugt að aukast og kappkostar Kælitækni að eiga sem mest úrval af vörum og íhlutum fyrir kæliverktaka. Hjá Kælitækni í dag fást flestar þær vörur sem fagmenn í Kælibransanum þurfa á að halda. Því má segja að Kælitækni sé að verða �Sérverslun Kæliverktakans�

Kælitkækni er með umboð frá mörgum heimsþekktum birgjum í kælingu og frystingu. North Star, Finsam, Geneglace, Teknoterm, Bitzer, Mycom, og DSI. Starfsmenn Kælitækni er öflug liðsheild með fjölbreytta reynslu og bakgrunn. Allflestir starfsmenn hafa starfað sem þjónustumenn við kæli-og frystikerfi og eru því öllum hnútum kunnugir. Kælitækni klæðskerasnýður lausnir fyrir hvern og einn viðskiptavin og býr þannig til heildarlausnir úr vélum og kerfum frá mismunandi birgjum. Helstu verkefni Kælitækni undanfarinna ára eru margvísleg. Má þar nefna
hönnun og uppsetningu ísverksmiðja, frystibúnað og krapakerfi í togara sem og fiskvinnsla í landi, fiskþurrkunarkerfi og vatnskælikerfi fyrir fiskeldi, verslunarkæla í smærri og stærri verslanir og ýmsan búnað fyrir veitingahús. Starfsemi Kælitækni hefur verið í stöðugum vexti og er markmiðið að halda áfram á þeirri braut.

Á föstudaginn héldum við hjá Kælitækni upp á einstök tímamót þegar Magnús Þorsteinsson, sem margir myndu einfaldlega kal...
06/07/2026

Á föstudaginn héldum við hjá Kælitækni upp á einstök tímamót þegar Magnús Þorsteinsson, sem margir myndu einfaldlega kalla gleðigjafa fyrirtækisins, varð 90 ára. Við slógum upp veislu með köku og brauðtertu, honum færð gjöf og nokkur orð sögð til að þakka honum fyrir allt sem hann gefur okkur á hverjum degi.

Maggi ber titilinn mannræktari hjá Kælitækni — og það er svo sannarlega nafn með rentu. Hann sér um eldhúsið og matsalinn okkar, hefur í gegnum tíðina hlaupið í sendiferðir þegar á hefur þurft að halda, og gerir það allt með sömu hlýjunni og glaðværðinni sem einkennir hann. Söngelskur, sí-brosandi og með þann eiginleika að lýsa upp hvert rými sem hann gengur inn í.

Á vinnustað þar sem starfsfólk kemur og fer, verkefni breytast og áherslur þróast, er Maggi fastur punktur sem minnir okkur öll á að fyrirtæki er fyrst og fremst fólk. Hann hefur með nærveru sinni og natni mótað menninguna hjá okkur meira en flestir gera sér grein fyrir.
Til hamingju með daginn, kæri Magnús — og takk fyrir að vera nákvæmlega sá sem þú ert.

30/06/2026

Óskum eftir skammtímahúsnæði – ágúst til október

Kælitækni leitar að skammtímahúsnæði fyrir hóp ítalskra starfsmanna sem koma til landsins í ágúst og dvelja fram í október vegna verkefnis á vegum fyrirtækisins.

Um er að ræða átta einstaklinga sem þurfa húsnæði í u.þ.b. tvo til þrjá mánuði. Við erum opin fyrir mismunandi lausnum – hvort sem það er ein stærri eining, íbúð eða fleiri smærri íbúðir, svo lengi sem heildaraðstaðan rúmar hópinn með góðu móti.

Æskilegt væri að húsnæðið væri búið húsgögnum og helstu heimilistækjum, með aðgengi að eldhúsi og þvottaaðstöðu.

Staðsetning á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrenni þess er ákjósanleg.

Þeir sem hafa húsnæði til leigu á þessu tímabili, eða geta bent okkur á slíkt, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband á [email protected]

Kæli- og frystigeymslur á Köllunarklettsvegi.Kælitækni hefur lokið við eitt umfangsmesta HEOS-verkefnið sitt — nýjar CO₂...
28/05/2026

Kæli- og frystigeymslur á Köllunarklettsvegi.

Kælitækni hefur lokið við eitt umfangsmesta HEOS-verkefnið sitt — nýjar CO₂-kæli- og frystigeymslur fyrir Ölgerðina á Köllunarklettsvegi. 10.000 m³ frystiklefa og 3.000 m³ kæliklefa, með umhverfisvænan og hagkvæman rekstur að leiðarljósi.

Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við nokkra lykilbirgja okkar — Carel með kælikerfin, Purever með klefaeiningarnar og Nergeco með iðnaðarhurðirnar. Með nýju geymslunum getur Ölgerðin tekið vörugeymslu og dreifingu Danól alfarið í eigin rekstur og sameinað starfsemina undir einu þaki.

Case study Kæli- og frystiklefar Ölgerðarinnar Fyrir Ölgerðina sáum við um hönnun og uppsetningu á einu umfangsmesta HEOS CO₂‑kælikerfiverkefni Kælitækni til þessa. Um er að ræða 10.000 m³ frystigeymslur og 3.000 m³ kæliklefa á Köllunarklettsvegi, sem byggja á HEOS HYBRID t...

Eigendaskipti hjá KælitækniFjórir lykilstarfsmenn hafa tekið við sem eigendur Kælitækni ásamt fjárfestingafélaginu Sjáva...
16/10/2025

Eigendaskipti hjá Kælitækni

Fjórir lykilstarfsmenn hafa tekið við sem eigendur Kælitækni ásamt fjárfestingafélaginu Sjávarsýn.

Nýju eigendurnir þekkja starfsemina út og inn og sjá fjölmörg tækifæri til að þróa fyrirtækið áfram með áherslu á þjónustu, nýsköpun og sjálfbærar, orkusparandi lausnir.

Kælitækni hefur gengið í gegnum eigendaskipti þar sem fjórir lykilstarfsmenn fyrirtækisins – Valur Ásberg Valsson framkvæmdastjóri, Elís H. Sigurjónsson tæknistjóri, Hörður Fannar Björgvinsson þjónustustjóri og Elías Halldór Ólafsson, nýr fjármálastjóri hafa tekið við ...

Til marks um sveigjanleika okkar þá urðu breytingar á lokametrunum og við færum okkur aðeins um setSjáumst á bás C-4 í L...
09/09/2025

Til marks um sveigjanleika okkar þá urðu breytingar á lokametrunum og við færum okkur aðeins um set

Sjáumst á bás C-4 í Laugardalshöll!

Kælitækni tekur þátt í sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll dagana 10.–12. september og mun kynna nýjustu lausnir í kæli- og varmatækni fyrir iðnaðinn. Áherslan verður á iðnaðarvarmadælur sem bjóða upp á bæði orkusparnað og umhverfisvænar lausnir. Með þessum lausn...

Kíktu til okkar á bás C-100 í Laugardalshöll 10-12.september!
03/09/2025

Kíktu til okkar á bás C-100 í Laugardalshöll 10-12.september!

Kælitækni tekur þátt í sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll dagana 10.–12. september og mun kynna nýjustu lausnir í kæli- og varmatækni fyrir iðnaðinn. Áherslan verður á iðnaðarvarmadælur sem bjóða upp á bæði orkusparnað og umhverfisvænar lausnir. Með þessum lausn...

Skemmtileg umfjöllun um Evachill tækin okkar í lok þessa viðtals 😁
23/07/2025

Skemmtileg umfjöllun um Evachill tækin okkar í lok þessa viðtals 😁

Atli Stefán Yngvason hjá Tæknivarpinu um nýjustu rafbílana og lofkælingu sem vinnur gegn lúsmýi

🌱 Jákvæð þróun í kælimiðlum!Elís H. Sigurjónsson ræddi við Samfélagið um góðan árangur stjórnvalda í minnkun á F-gösum o...
31/03/2025

🌱 Jákvæð þróun í kælimiðlum!

Elís H. Sigurjónsson ræddi við Samfélagið um góðan árangur stjórnvalda í minnkun á F-gösum og hvernig Kælitækni hefur brugðist við með umhverfisvænum og orkusparandi lausnum.

Hægt er að hlusta á viðtalið hér: https://www.ruv.is/utvarp/spila/samfelagid/23617/b7189t (viðtalið við Elís hefst eftir um 18 mínútur)

Elís H. Sigurjónsson, tæknistjóri Kælitækni, ræddi nýlega við Samfélagið á RÚV um jákvæðar breytingar á kælimiðlamarkaðnum og árangur af aðgerðum stjórnvalda gegn flúoruðum gróðurhúsalofttegundum (F-gösum). Þetta viðtal er framhald af viðtali við Elís árið 2019 ....

📢Kælitækni hlýtur alþjóðlegar gæða- og umhverfisvottanir 📢Árið 2024 hófum við þá vegferð að innleiða ISO 9001 og ISO 140...
21/02/2025

📢Kælitækni hlýtur alþjóðlegar gæða- og umhverfisvottanir 📢

Árið 2024 hófum við þá vegferð að innleiða ISO 9001 og ISO 14001, til að styrkja þá sýn okkar að bjóða upp á gæða vörur, frábæra þjónustu og umhverfisvænar lausnir.

✔ ISO 9001 – Viðurkenning á því að við bjóðum upp á hágæða vörur og framúrskarandi þjónustu með skýrum ferlum og áherslu á stöðugar umbætur.
✔ ISO 14001 – Staðfesting á skuldbindingu okkar við sjálfbærni og útfösun f-gasa.

Starfsfólk Kælitækni hefur lagt sitt af mörkum til að tryggja að við uppfyllum ströngustu gæðaviðmið, og þessi vottun er staðfesting á þeirri vinnu.

Við höldum áfram að þróa umhverfisvænar lausnir og bæta okkur fyrir viðskiptavini og umhverfið! ❄️

Kælitækni hefur náð mjög mikilvægum áfanga með því að hljóta bæði ISO 9001 og ISO 14001 vottun, sem er staðfesting á því að fyrirtækið vinni eftir ströngum alþjóðlegum stöðlum í gæða- og umhverfisstjórnun. Þetta er afrakstur mikillar og markvissrar vinnu starfsfólks ...

24/12/2024

Address

Járnháls 2
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3544401800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kælitækni ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Kælitækni ehf:

Shortcuts

Share