11/11/2014
Það er mér mikill heiður að byrja hér í haustlok með nýjan blogg pistil minn sem gengur undir nafninu Dísa í Dós, en það viðurnefni fékk ég eftir að hafa unnið við hjálpartæki ástarlífsins í nokkur ár, en við geymum þá sögu þar til síðar.
Til að segja þér meira um mig þá langar mig að fara aðeins yfir það sem ég hef verið að gera síðustu árin í stuttu máli. Ég er fædd og uppalin í Kópavogi, 32 ára gömul og var við nám í Þýskalandi í nokkur ár þar sem ég vann á meðan ég lærði viðskiptafræði hjá fyrrtæki sem hét ZBF, en það félag sameinaðist móðurfélagi sínu Scala Playhouse í Hollandi rétt um það leiti sem ég var að ljúka námi mínu.
EEftir námið kom ég hingað heim aftur beint í hrunið mikla og fór mikið að stúdera markaðinn hér og notkun landans á hjálpartækjum ástarlífsins. Það kom mér svolítið á óvart hversu mikið drasl var á boðstólnum og hvað markaðurinn var í raun mettaður af rándírum vörum sem augljóslega koma flestar frá Kína. Aðeins eitt fyrirtæki stóð uppúr og var það netverslunarkeðjan AVK en það fyrirtæki og sú kona sem stendur á bakvið það er einstök manneskja sem tekur ekkert annað í mál en hágæða vörur frá Evrópu, Bandaríkjunum og hinum vestræna heimi.
Ég heillaðist samstundis af verslununum sem þá voru einungis tvær (á netinu) og var mjög forvitin að vita afhverju eigandinn væri ekki með búð í bænum eða á ódýru verslunarsvæði, en svarið var einfalt.
„Ég vil að allir geti notið tækjanna sem ég sel en ekki bara fáunnir útvaldir einstaklingar. Með því að opna verslun hækkar yfirbyggingin svo svakalega að enginn myndi hafa efni á að kaupa þessar dýru vörur sem ég hef uppá að bjóða.“
Með því að bjóða einungis upp á netverslun væri hún í raun að tryggja lágmarks álagningu þannig að vöruverðið gæti bæði verið lágt og aðgengilegt sem flestum. Þeir sem ekki væru með netið gætu hins vegar einfaldlega hringt í farsíma hennar til að fá upplýsingar og þjónustu.
Mér finnst mikil viska fólgin í þessu, sérstaklega þegar við skoðum vörur kosta í raun og veru í innkaupum. Þetta er náttúrulega samkeppnismarkaður þar sem litlar netverslanir skjóta upp kollinum annað slagið og þá yfirleitt með svipaðar vörulínur og Elskendur eru að bjóða uppá, en þær hverja jafn óðum af markaðinum.
„Það halda margir að maður sé vaðandi í seðlum með þessar búðir en svo er ekki“ bætir frúin við.
Eftir langan vinskap við frúnna, sem er ekkert hrifin af því að vera nefnd á nafn opinberlega, bauð ég henni að ráðleggja henni varðandi vörur og úrval, þá sérstaklega í kvennadeildinni. Hún tók því fegins hendi og allar götur frá því í október 2011 hef ég svo unnið að því að safna saman vöruflokkum og nýjum vestrænum vörum til að bæta við í vörulistann. Eggið frá Holland, eins og það hefur verið kallað á bylgjum ljósvakans, t.a.m. á RÚV, RÁS 1 í síðustu viku er það fyrsta sem tekið var inn samkvæmt minni ráðleggingu og er ég ofboðslega ánægð með þær frábæru móttökur sem þjóðin öll hefur sýnt Egginu góða.
Bakvið eggið liggur aðeins meira en að benda og segja; „Já, ég ætla að fá einn kassa af þessu.“ Margra mánaða prófanir, bæði á mér sjálfri og vinkonum mínum ásamt prófunum á gæðum og endingu eggsins þurftu að fara fram áður en eggið færi í sölu á Elskendum. Reglan er sú að ef varan uppfyllir ekki ströngustu gæðakröfur og væntingar kvenna og karla, þá er varan ekki tekin inn.
Já, dagar þess tíma er nýtt 20,000 króna egg frá Kína var keypt við önnur hver mánaðarmót er liðinn. Hágæða egg sem kosta hjá elskendum allt frá 4200 krónum eru betri því þeim fylgir ábyrgð til tveggja ára, maður er öruggur um að ekki er um eiturefni að ræða, enda ströngustu evrópustöðlum fylgt og ekki er verra að sama póstburðargjald er notað fyrir landið allt.
Ekki gleyma að ábyrgðin liggur hjá seljenda vörunnar og þarf hann að tryggja að varan virki í að minnsta kosti tvö ár ellegar skipta henni út að kostnaðar lausu. Því miður gerist það allt of oft með kynlífstæki að fólk er feimið við að skila, en hér hjá Elskendum er það bara eitt símtal og nýtt tæki verður komið til þín eftir tvo daga ef það er til á l***r.