26/06/2026
Það eru ákveðin tímamót hjá okkur í Gólfefnaval sem kalla fram bæði þakklæti og söknuð.
Í dag kveðjum við hann Jóhann Elvar Valdimarsson samstarfsmann sem hefur verið ómetanlegur hluti af okkar vegferð. Með fagmennsku, áreiðanleika og óbilandi vinnusemi hefur hann ekki aðeins sinnt sínu starfi af mikilli alúð heldur einnig sett mark sitt á fyrirtækið á þann hátt að það stendur sterkara í dag en áður.
Hann hefur verið sá sem hægt hefur verið að treysta á í öllum verkefnum, notið virðingar og vinsælda meðal samstarfsfólks og viðskiptavina og átt stóran þátt í að lyfta fyrirtækinu upp á þann stall, sem það stendur núna á, blístrandi glaður.
Slíkt framlag verður ekki mælt í árum einum saman heldur í þeim áhrifum sem þau skilja eftir sig.
Nú þegar nýr kafli tekur við viljum við færa honum okkar innilegustu þakkir fyrir samfylgdina, tryggðina og öll þau spor sem hann hefur skilið eftir hjá okkur.
Við óskum Jóhanni innilega til hamingju að vera komin á eftirlaunaaldurinn (65 ára) og vonum að fram undan séu góðir dagar, ný ævintýri og tími til að njóta efri áranna.
Takk fyrir allt❤️
Samstarfsfólk Gólfefnavals❤️