Veiðiþjónustan Strengir

Veiðiþjónustan Strengir Veiðiþjónustan Strengir býður veiðimönnum upp á fyrirtaks laxveiði á gullfallegum ársvæðum

Veiðiþjónustan Strengir var stofnuð árið 1988 og hefur síðan þá lagt mikla áherslu á persónulega og góða þjónustu við veiðimenn jafnt innlenda sem erlenda. Strengir hafa nú á sínum snærum Breiðdalsá, Jöklu og hliðarár, Fögruhlíðará, Hrútafjarðará og Minnivallalæk. Forstjóri Strengja er Þröstur Elliðason en hann er jafnframt stofnandi fyrirtækisins.

Nature’s own canvas. Where water, color and landscape turn into art.Where? Jökla🎣
21/08/2026

Nature’s own canvas. Where water, color and landscape turn into art.
Where? Jökla🎣

Stórlaxaveisla!Um helmingur veiðinnar í Jöklu er stórlax og hér eru tveir "alvöru" í gær, 95 og 97 cm og annar nýrunninn...
19/08/2026

Stórlaxaveisla!

Um helmingur veiðinnar í Jöklu er stórlax og hér eru tveir "alvöru" í gær, 95 og 97 cm og annar nýrunninn! Fjölmargir eru 80 cm og stærri eða hátt í 300 laxar og eru það yfirleitt hrygnur.

https://www.mbl.is/frettir/veidi/2026/08/17/mikil_aukning_laxveidi_i_joklu/
18/08/2026

https://www.mbl.is/frettir/veidi/2026/08/17/mikil_aukning_laxveidi_i_joklu/

„Þetta er glæsileg veiði, lítur vel út og mikið af fiski, og laxinn er enn að ganga. Ég bjóst við góðri veiði í sumar, við erum búin að vera að byggja upp ána frá því Jökla var virkjuð og hér er orðinn til einn af stærstu laxastofnum landsins,“ segir Þröstur Elliðas...

11/08/2026

Kaldá er stórskemmtileg og vatnsmikil hliðará Jöklu sem er um 6 km löng. Hér má sjá Sauðárbreiðuna sem er einn af betri veiðistöðum árinnar. Má sjá í laxa þarna neðarlega og myndbandið tók Hafsteinn Friðbjarnarson leiðsögumaður.

Viltu veiða í Jöklu?Veislan heldur áfram í Jöklusvæðum og bara í morgun komu 35 laxar á land! Þar af voru þrír 90 cm eða...
08/08/2026

Viltu veiða í Jöklu?

Veislan heldur áfram í Jöklusvæðum og bara í morgun komu 35 laxar á land! Þar af voru þrír 90 cm eða stærri og við erum strax komin upp í 1.100 laxa nú þegar.

Mikið er bókað en nú er ljóst allavega að ekkert yfirfall kemur næsta mánuðinn. Á vef okkar má nú sjá að við höfum opnað fyrir sölu á dögum á Jöklu II sem er efra svæðið sem tekur 6 stangir. Um er að ræða dagana 18-21 ágúst, 24-27 ágúst og einnig eftir 30 ágúst og inn í fyrstu viku september.
Einnig er laust á neðra svæðinu hér og þar í september eins og sjá má vefnum undir laus veiðileyfi.

Ljósmynd: Stórlax úr Gauksstaðabreiðu á Jöklu II.

Jöklan komin yfir 1000 laxa!Í dag fór Jöklan yfir 1.000 laxa og af tilefni þess var slegið upp veislu í Veiðihúsinu Háls...
06/08/2026

Jöklan komin yfir 1000 laxa!

Í dag fór Jöklan yfir 1.000 laxa og af tilefni þess var slegið upp veislu í Veiðihúsinu Hálsakoti. Auðvitað bakaðar vöfflur og skálað síðan í kampavíni. Stefnum á 2.000 laxa fyrir næstu veislu!
Jökla river had another great day and now we are over 1.000 salmon. Celebration was this evening in the lodge.

Address

Smárarimi 30
Reykjavík
112

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Veiðiþjónustan Strengir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Veiðiþjónustan Strengir:

Shortcuts

Share

Category