14/09/2026
FORSALA Í SKÁLDU 😱
Skálda bókabúð er með forsölu á tveimur splunkunýjum ljóðabókum, sem dreift verður í aðrar bókabúðir síðar í haust. Þeir sem kaupa bækurnar fá þær afhentar í verslun Skáldu, en einnig er boðið upp á heimsendingu í vefverslun.
Ný ljóðabók úr smiðju Hannesar Péturssonar, Hjá Leyningsvötnum. Hannes hefur verið meðal höfuðskálda þjóðarinnar í rúma sjö áratugi eða frá því að hann kvaddi sér hljóðs með Kvæðabók árið 1955. Hjá leyningsvötnum er tólfta ljóðabók Hannesar. Skáldinu er vant einskis á árstíð saknaðarins og hefur ekki dregið úr dirfsku sinni við að takast á við nútímann.
Ljóðaúrval Braga Ólafssonar, Á horni Bayswater Road og Lækjargötu. Verkin eru einkum úr ljóðabókum Braga en einnig úr prósasöfnum og sérritum, auk þess sem nokkur ljóð birtast hér í fyrsta sinn. Óhætt er að segja að Bragi hafi mikla sérstöðu meðal íslenskra ljóðskálda, sem á ekki síður við um verk hans af öðrum toga.
Tryggið ykkur eintak á forsölutilboði í Skáldu.
Hönnun: Studio Studio