Talnaspeki Lafleur -Tölugreining fyrir einstaklinga og fyrirtæki

Call Directions Website

Talnaspeki Lafleur -Tölugreining fyrir einstaklinga og fyrirtæki Reiknaðu þig út! Lærðu á tölurnar þínar -
vertu þinn eigin meistari!

17/01/2021

Talnagreining

Árið 2021
Frelsi og Sjálfstæði
Heilbrigði - Hreinsun - Hugsjónir

Talan fimm er tala frelsis og sjálfstæðis. Hún er í senn ástríðufull og hugsjónarík og henni er ætlað að rækta heilbrigð gildi og stuðla að bæði líkamlegri og andlegri hreinsun. Fimman fylgir jafnan eigin sannfæringu, hún þolir illa málamiðlanir heldur fer eigin leiðir hvað sem tautar og raular, jafnvel í trássi við boð og bönn ríkjandi kennivalds.

Talan fimm er tala andstæðna, hún kann allt í senn að krauma niðri í kviku ólgandi eldfjalls um leið og hún speglar sig í lótusstellingu ógáraðrar náttúrulindar.

Öfgar fimmunnar geta hvort heldur leitt hana á braut ofurheilbrigðra lífsvenja sem og á tálar tortímandi fíkna.

Fimman er tala Íslands; tala óbilaðs drifkrafts og áræðni byggjenda óútreiknanlegra nàttúruváa en um leið óþrjótsndi tækifæra gjöfulla auðlinda.

Helstu eiginleikar og kostir fimmunnar: Hún er í senn frjáls og óháð, drífandi, opinská, hrein og bein, hugsjónarík og ástríðufull, praktísk, heilbrigð og andlega sinnuð.

Helstu víti til að varast: Öfgar af hvers kyns toga, fíknir og hömlulausar ástríður, óþreyja og óþolinmæði, öfgar í skapsmunum, óhlýðni og virðingarleysi gagnvart ríkjandi kennivaldi, , Hætta á að brenna út í of þróttmiklu lífsstarfi. Þarf að læra að slaka á og eða finna leiðir fyrir tilfinningalega útrás.

Talnaspá:

Árið 2021 verður ár hugmyndafræðilegra átaka og mikillar hreinsunar á hinum ýmsu sviðum. Ár uppgjörs þar sem sannleikurinn kemur upp á yfirborðið og réttlætið sigrar. Þeir spilltu og óheiðarlegu fá á sig dóm og fíknir taka völdin af hinum veikgeðja. Heilbrigður lífstíll fær byr undir báða vængi og sparnaðarsjónarmið taka við af framúrkeyrslu í meðferð fjármuna. Sjálfstæð þjóð mun rísa upp gegn kúgun ríkjandi valdhafa. Afburðafólk í íþróttum fangar heimsathygli.

01/01/2020

Gleðilegt ár kæru vinir. Mjög konkret ár framundan (2020, 2+2=4). Í hönd fer ár uppbyggingar og vinnusemi, kærleika, raunsæis og jarðbundinna áætlana. 2020 er ár fjölskyldusameiningar, kærleika og friðar, þar sem aukin áhersla verður á félagsleg gildi, réttlæti og sanngirni.

02/01/2018

·
Talnagreining á árinu 2018:

Með nýju ári má segja að vægi orkunnar aukist úr 17 í 18. Hinn metnaðarfulli og drífandi ás, sem er um leið burðarliðurinn í tölunum tveimur, hefur nú gengið til liðs við áttuna, tölu peninga og viðskipta, stjórnmála og valda, diplómatískra samskipta og sveigjanleika. Áttan sem var jú þversumma tölunnar 17 er nú orðin virkari í þversummu alls ársins en áður og meira áberandi. Saman mynda þessar tvær tölur, 1 og 8, hina alþjóðlegu og óeigingjörnu tölu heildar og þjónustu, töluna 9.

Þversumma alls ársins 2017 var 10 (2 + 0 + 1 + 7 = 10) eða 1 (1 + 0 = 1) en er nú orðin 11 eða 2 (2 + 0 + 1 + 8 = 11 / 2).

Meistaratölur leggjum við yfirleitt ekki saman, ekki hér frekar en áður. Þversumman tveir felur hins vegar í sér kærleiksmátt og metnað í þá veru til að bjarga heildinni og færa fórnir fyrir hana. 11 er engu að síður óvenju hörð og miskunnarlaus tala, hvort heldur hún hneigist til góðs eða ills. Hún er afspyrnu metnaðarfull og svífst einskis í viðleitni sinni.

11 er tala frumkvöðulsins, tala frumkvæðis og frumlegrar nýsköpunar. Hún nýtur ekki alltaf skilnings og þarf á hjálp að halda til að ná sínu fram. Þetta er tala mikillar andlegrar hreinsunar, en einnig í efnislegum skilningi, tala umbrota og jafnvel náttúruhamfara. Að baki þessarar drífandi og metnaðarfullu brautryðjendatölu búa hins vegar mjög öflugar og drífandi tölur sem kunna að koma henni töluvert að gagni, ekki síst í alþjóðlegum skilningi. Í þessu sambandi er hægt að horfa til allra okkar ástsælu íþróttamanna með töluverðri bjartsýni.

Sem fyrr höfum við töluna 2 sem fylgir öld vatnsberans, tölu kærleika og greiðvikni, tölu móðurlegrar umhyggju og umburðarlyndis. Talan 1 eykur enn hinn drífandi sóknarkraft sem í ellefunni felst en hefur nú öðlast bandamann í fjármálatölunni 8.
Hafa ber þó í huga að áttunni fylgir töluverð áhættusækni, sem er vissulega þörf ef ráðist er í nýja sókn í brautryðjendamálum en sem getur einnig haft í för með sér tjón eða tap ef tekin er óþörf áhætta sem skilar sér ekki í gróða eða vinsældum.

Kannski átti þetta þó fremur við um töluna 2017, þar sem þversumman var einn, tala sem við þekkjum alltof vel frá hrunárinu 2008 og takmarkaði sókn áttunnar og dró úr henni kraft og áræðni með afdrifaríkum og varanlegum hætti í samdrætti í stað uppbyggingar. Nú hefur sóknarþunginn náð meiri styrk en áður með meistaratölunni 11 og með hvarkvæmari skírskotun (með þversummunni 9) sem ætti að hjálpa tölunni að ná þeim árangri sem henni er ætlað.

Skál kæru frumkvöðlar! Megi þið njóta skilnings og blessunar í leik og starfi.

30/12/2017

Skál kæru frumkvöðlar. Þversumma ársins 2018 eru meistaratalan 11! Nú ríður á að ríkisstjórnin efni loforð sitt að styðja sérstaklega við bakið á okkur brautryðjendunum, því árið 2018 er ár þeirra sem ryðja brautina. Ekkert verður gefið eftir í þeim efnum af okkar hálfu og mikilvægt að við fáum alla þá hjálp sem við þörfnumst til að fylgja köllun okkar og láta gott af okkur leiða heildinni allri til heilla. 2. janúar birti ég greininguna fyrir árið 2018 í heild sinni. Þeir sem vilja geta haft samband og látið greina nafn sitt og fæðingarár með tilliti til nýja ársins sem í hönd fer. Gleðilegt nýtt ár, 2018!

30/12/2017

Mun birta greiningu á árinu 2018, fyrst í smækkaðri útgáfu á gamlársdag, síðan í fullri lengd annan janúar. Þeir sem vilja geta pantað greiningu hjá mér, til dæmis með tilliti til hins nýja árs og sömuleiðis spár út frá þeirri greiningu. Best að senda mér fyrirspurn eða póst á [email protected]

06/01/2017

Tilvalið að byrja nýtt ár á því að rýna í tölurnar og skoða hvað þær segja um möguleikana á þessu ári... tek að mér að greina bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki, allt frá stuttri grunngreiningu til ítarlegrar persónulegrar framtíðarspár - sérstaklega í ljósi nýja ársins! Upplýsingar í síma: 659 3313 / [email protected].

02/01/2016

Árið 2016 felur í senn í sér mikla áskorun um að brjótast úr hlekkjum þægindarammans og kröfu um að sýna ákveðna fyrirhyggjusemi í hugmyndafræðilegum breytingum, sem og umskiptum á heimilis- og fjölskylduaðstæðum.

04/02/2014

Welcome to my brand new numerology site - now uploaded with
your inborn destiny number, your birth number...
In both English and Russian language - Free of charge!

WWW.NUMEROLOGYLAFLEUR.COM

Address

Aðalgata 20
Sauðárkrókur
550

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Talnaspeki Lafleur -Tölugreining fyrir einstaklinga og fyrirtæki posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category