15/08/2022
Það held ég nú, uppáhalds græjan mín á tilboði. Var búin að vera röflandi, frá því að ég byrjaði 2006 að kynna Enjo, yfir vöntun á lítilli moppu. Hún er komin og hún er æði. Ýmist hægt að kaupa hana eina og sér eða með gluggasköfunni. Nú, ef gluggaskafan er til staðar, þá er bara keyptur plattinn og moppa, sem er svo fest fram á gluggasköfuna. Auðvitað er svo hægt að taka gúmmíbrautina af.
3 týpur af klútum,
blái trefjaklúturinn inniheldur okkar bestu trefjar á
mikil óhreinindi og fitu(geggjaður á td veggi og sturtugler, það
þarf svo að þurrka eða skafa á eftir).
Appelsínuguli rykklúturinn er notaður þurr til að fjarlægja ryk, algjör snilld til að rykþrífa veggi td fyrir málun.
Svo er það bláa alnota moppan, ýmist notuð rök/blaut eða þurr i byrjun og vatni úðað á flötinn. Rosalega góð til að þrífa veggi og hurðar.
Þetta er virkilega þægileg og skemmtileg græja, hvort sem hún er brúkuð á gluggana, veggina, hurðarnar, borð, sturtugler, innréttingar, bíllinn eða hvað eina sem manni dettur í hug.
Þessi dúddi var sko fljótur að verða mitt uppáhald.
Hægt að panta hjá mér eða beint af netverslun, sem er virkilega flott og þægileg. Vörurnar er vel útskýrðar þar og ýmis sýnimyndbönd.
Mér þætti afar vænt um, að ef þið verslið þar, að setja nafnið mitt(Helga Flosa) í athugasemd, takk takk.
Ég bý á Selfossi og það er hægt að kíkja til mín að skoða eða ég get mætt og fleygt í kynningu, hvort sem það er einkakynning eða fyrir hóp.
Helga Flosa, er með posa😝
Fjölnotaáhald, stálbraut með gúmmí og val um moppu til að þrífa alla stærri slétta fleti. Svo sem veggi, spegla og fleira. Hentar einnig til að skúra minni gólf t.d. á gestasnyrtingu. Stillistöngin af gólfgrindinni passar á áhaldið. Stærð moppu u.þ.b. 28,5 x 7,5 cm