Skarpa - Icelandic local yarn

Skarpa  - Icelandic local yarn Icelandic Local Yarn with a traceability to the sheep

Unnið að því að koma garninu mínu á netið í fyrsta sinn.  Verður áhugavert að sjá hver áhuginn verður fyrir því.Hægt að ...
13/07/2026

Unnið að því að koma garninu mínu á netið í fyrsta sinn. Verður áhugavert að sjá hver áhuginn verður fyrir því.

Hægt að nálgast mínar vörur á https://dunda.is/dundarar/skarpa/

Munu koma inn fleiri litir ofl á næstu dögum og vikum.

Kindurnar allar komnar a fjall.... þær síðustu fóru 10. júní. Nú er einnig búið að fylla á flesta sölustaði og í ár bæti...
29/06/2026

Kindurnar allar komnar a fjall.... þær síðustu fóru 10. júní. Nú er einnig búið að fylla á flesta sölustaði og í ár bætist einn við....
Sölustaðir 2026
Minjasafnið að Hnjóti
Handverksfélagið Assa - Króksfjarðarnesi
Ullarselið á Hvanneyri
Norska húsið í Stykkishólmi
Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum.
Og það sem kemur í júlí
Gallerí Lundi í Stykkishólmi
Einnig er verið að vinna í að bæta við sölu a netinu :)

Það er alltaf hægt að hafa samband við mig og kaupa beint frá mér :)

Gleðilegt sumar

02/03/2025

Unnið á fullu við að gera dokkurnar klárar fyrir merkingu... sjáumst í Hörpunni helgina 8-9 mars

Ég er með Tiktok aðgang þar sem eru  myndbönd ofl úr fjárhúsunum og því sem ég er að bralla í svona daglegu lífi..... en...
28/02/2025

Ég er með Tiktok aðgang þar sem eru myndbönd ofl úr fjárhúsunum og því sem ég er að bralla í svona daglegu lífi..... endilega fylgið með og hittið kindurnar á bakvið garnið..... fara að detta inn kynningar á þeim fljótlega

26/09/2024

Felddómar þetta árið hefðu mátt vera sterkari eða maður er bara farin að vera harðari á sig
Hef nú kannski ekki verið að skrifa mikið um þetta
Áberandi er að gljáinn kemur mjög snemma fram og ansi mörg sem voru fyrsta stigs feldblendingar voru með hátt í gljáa sem er mjög jákvætt en það sem vantaði hjá mínum var lokkurinn og dreifingin en þéttleiki fékk góða dóma.
Feldsdómar best er að fá 5 í hverjum eiginleika og heild 30 stig

Systurnar frá Skvísu ( sem er undan Fjörugu Fróðu(fyrsta stigs Feldur undan Mel 12-978) og Sólon Íslandus(sem er undan Ljúf 16-817)) fengu bestu einkanirnar af mínum gimbrum - 23 og 24 stig en samt vantaði í Lokk, lokkun og dreifing
Þær eru undan svarta feldfélagshrútunum okkar sem fékk 29 stig í fyrra - hann er undan Brúsa - 18-881

svona til gamans þá eru hérna þeirra einkannir - alveg ekkert flottar tölur kannski fyrir þennan almenna bónda en þar sem feldfé er líkt við forystur í vexti þá er þetta bara til gamans að fá þessar tölur

Steingleymdi að taka myndir af þeim en þær eru enn út í girðingu - á eftir að ákveða hvað verður - ásetningur, selt eða flottar gærur....

Gimbur nr 49 - 36,5 kg, 22 í vöðva, 3,7 í fitu og 3,5 í lögun - frampartur 7 - læri 15 og ullin 9

Litur 24
Hreinleiki litar 4 stig
Lokkun/dreifing 2 stig
Lokkurinn 2 stig
Gljái 5 stig
Hárgæði 3 stig
Gæði toghára 4 stig
þéttleiki 4 stig
Heildarstig 24 stig

Gimbur nr 50 - 27 kg, 22 í vöðva, 2,8 í fitu og 3,5 í lögun - frampartur 7 - læri 15 og ullin 9

Litur 23
Hreinleiki litar 4 stig
Lokkun/dreifing 2 stig
Lokkurinn 2 stig
Gljái 4 stig
Hárgæði 4 stig
Gæði toghára 4 stig
þéttleiki 3 stig
Heildarstig 23 stig

Address

Stykkishólmur
340

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skarpa - Icelandic local yarn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share