Kanínuholan - The Rabbithole

Kanínuholan - The Rabbithole Kanínuholan er fornbókaveröld í Holtunum / The Rabbithole is a magical world of books in Reykjavík.

25. ágúst, afmæli pabba, Geirlaugs Magnússonar. Jafnframt var Kanínuholan stofnuð þennan dag fyrir 6 árum síðan (25.08.2...
25/08/2026

25. ágúst, afmæli pabba, Geirlaugs Magnússonar. Jafnframt var Kanínuholan stofnuð þennan dag fyrir 6 árum síðan (25.08.2020). Ég held upp á daginn með óhóflegri kaffineyslu, set Dylan á fóninn og aldrei að vita nema kona taki einn rússa eða jafnvel langavitleysu. ♠️♦️♣️♥️☕️🥸 móa

Kári Túliníus skáld kom með glænýja og skínandi fína ljóðabók sína: Mánahjörð. Hún er nefnilega nýkomin út hjá bókaútgáf...
24/08/2026

Kári Túliníus skáld kom með glænýja og skínandi fína ljóðabók sína: Mánahjörð. Hún er nefnilega nýkomin út hjá bókaútgáfunni Þúfan. Við ræddum lífið, dauðann, smásagnahátíð Stelks í haust og svo allt hitt. Nú að sjálfsögðu er bóksali langt komin með sjöþúsundustu bókabúðartiltektina 🐝🥸🌝 .is

Menningarnótt- Í anda mannréttinda og mannúðar. Félagið Ísland-Palestína og almannaheillafélagið Vonarbrú taka höndum sa...
22/08/2026

Menningarnótt- Í anda mannréttinda og mannúðar.

Félagið Ísland-Palestína og almannaheillafélagið Vonarbrú taka höndum saman og standa fyrir gleði- og gæðastund á Menningarnótt, í samstöðu og samkennd.

Hvar: Í garðinum að Auðarstræti 11, 105 Reykjavík.

Hvenær: Laugardaginn 22. ágúst kl. 14-20.

Boðið verður upp á ýmsan söluvarning og
listviðburði svo sem upplestur, tónlist og dans til að efla andann fyrir öll þau sem vilja styðja fólk sem sætir þjóðarmorði.

Merkið ykkur endilega áhugasöm hér og fylgist með í aðdragandanum. Við þiggjum einnig deilingar ykkar með kærum þökkum svo sem allra flest viti af.

DAGSKRÁ 🌷

Dagskráin á morgun í Auðarstræti 11

Kl. 14.00 Garðurinn opinn og við bjóðum öll hjartanlega velkomin. Félögin Ísland-Palestína og Vonarbrú verða með varning til sýnis og sölu; boli, klúta, kökur, sælgæti, sultur, bækur, fatnað, leikföng, armbönd, klúta og margt fleira.

Kl. 14.30 Formleg dagskrá er opnuð með flutningi á ljóðinu Hugsið um hin (Think of others) eftir Mahmoud Darwish.

Írska listakonan Aoife O’Brian flytur tónlist

Ljóð Mosab Abu Toha úr ljóðabókinni Það sem kann að leynast í eyra mínu í þýðingu Móheiðar Geirlaugsdóttur. Guðrún Jónsdóttir stjórnarkona í Vonarbrú les.

Kl. 15.30 Hamza Abukamleh kennir og leiðir fjöldadans - Dabke dansinn, sem á sér djúpar rætur í palestínskri menningu. Sjá umfjöllun um hann á Vonarbrúar síðunni hér á Facebook.

Kl. 16.30 Snorri Helgason flytur nokkiur lög

Kl. 17.30 Ljóðalestur - Ásdís Ingólfsdóttir flytur ljóð sem tengjast Palestínu

Kl. 18.30 Ávarp frá Reham Khaled vinkonu okkar á Gaza. Ragnheiður Steindórsdóttir leikkona flytur.
Tónlistarflutningur Apex Amina

Kl. 19.30 Jón lærði: Særingakvæðið Snjáfjallavísur. Viðar Hreinsson framkvæmir særingarnar.

Kl. 20.00 Dagskrárlok

Dagskrárstjóri Ásdís Ingólfsdóttir

Inn á milli gefst góður tími til að rölta á milli tjaldanna, skoða varning og eiga innihaldsríkt samtal við hvert annað. BDS sniðgönguhreyfingin verður á svæðinu og veitir okkur góð ráð um sniðgöngu.

Smávægilegar breytingar geta orðið á dagskránni.
Hrefna Guðmundsdóttir Vonarbrú Félagið Ísland-Palestína Ásdís Ingólfsdóttir

Glaðsinna hópur Skota gerðu góða heimsókn í holuna rétt eftir að ég opnaði eftir nokkurra vikna sumarfrí. Það var mikil ...
16/08/2026

Glaðsinna hópur Skota gerðu góða heimsókn í holuna rétt eftir að ég opnaði eftir nokkurra vikna sumarfrí. Það var mikil gleði að hitta fyrrum landa, sem voru auðvitað smekkfólk á bókmenntir og ljóðlist auk þess sem rætt var um einn af mínum uppáhaldskollegum í heimaborg þeirra, krúttlegu underground lestirnar þeirra og svo auðvitað veðrið, nema hvað! / A cheery bunch o’ Scots dropped by for a grand wee visit to the Rabbithole right after I opened up. It was a proper buzz catching up wi’ folk from my old stomping ground—cracking folk with dead good taste in books and poetry, mind. We got to blethering about one of my favourite colleagues back in their home toon, their wee cute subway trains, and, well... the weather, naturally! ☔️

Uppáhalds bóksalinn ykkar skrópaði í sumarskólanum og fór í bókabúðarleiðangur hér í Poznań😎 Dom książki og nokkrar hels...
28/07/2026

Uppáhalds bóksalinn ykkar skrópaði í sumarskólanum og fór í bókabúðarleiðangur hér í Poznań😎 Dom książki og nokkrar helstu perlurnar voru þræddar í sól og sumaryl - nú svo var ekki verra að fá Szymborska, Tokarczuk, Kapuściński og svo ljóðabók á pólsku til að klóra mig fram úr eftir Małgorzata Lebda BOOKOWSKI | KSIĘGARNIE KAMERALNE | POZNAŃ Kahawa Kawa i Książka Skład Kulturalny Dom Książki Poznań #🥸💫🦁🌝📯

Fundið ljóð dagsins er pólskt, nema hvað, en þar er bóksalinn einmitt stödd  #🇵🇱
25/07/2026

Fundið ljóð dagsins er pólskt, nema hvað, en þar er bóksalinn einmitt stödd #🇵🇱

Jak sobie pościelesz, tak się wyśpisz - fyrsta orðatiltækið mitt á pólsku   Arnar Eggert Thoroddsen  #😘💫🍓🌝
24/07/2026

Jak sobie pościelesz, tak się wyśpisz - fyrsta orðatiltækið mitt á pólsku Arnar Eggert Thoroddsen #😘💫🍓🌝

Ég sendi auðvitað holuljóð á hann Nicolas — sem kollegi hans í holurannsóknum —         Nicolas👋🏼  #🕳️🦋
20/07/2026

Ég sendi auðvitað holuljóð á hann Nicolas — sem kollegi hans í holurannsóknum — Nicolas👋🏼 #🕳️🦋

Kanínuholan punktur is er fædd! Ljósmóðirin, kyngimagnaður vefstjóri, Kolbrún Kristín Karlsdóttir, sá um alla vinnu, hön...
14/07/2026

Kanínuholan punktur is er fædd! Ljósmóðirin, kyngimagnaður vefstjóri, Kolbrún Kristín Karlsdóttir, sá um alla vinnu, hönnun og útlit. Á síðunni er hægt að kaupa ýmsar fágætar bækur sem og útgáfu Kanínuholunnar. Nú svo er hægt að skrá sig á póstlistann og já bara gleyma sér í fornbókaveröldinni. Þvílíkt framfaraskref! #🐰🦕🐝🏅 #🥸💫😘🇫🇷 Kolbrún Kristín Karlsdottir

Meðlimir úr hinni stórfrægu Skelkur í bringu mættu í Holuna, elgfersk eftir vel heppnaða upptökulotu og takkamaðurinn me...
13/07/2026

Meðlimir úr hinni stórfrægu Skelkur í bringu mættu í Holuna, elgfersk eftir vel heppnaða upptökulotu og takkamaðurinn með í för. Eitthvað var um bókmenntahjal líka, nema hvað 🐰🌝👩🏽‍🚀 Steinunn Eldflaug Harðardóttir

Adres

Piątkowska 80
Poznan
60-650

Strona Internetowa

Ostrzeżenia

Bądź na bieżąco i daj nam wysłać e-mail, gdy Kanínuholan - The Rabbithole umieści wiadomości i promocje. Twój adres e-mail nie zostanie wykorzystany do żadnego innego celu i możesz zrezygnować z subskrypcji w dowolnym momencie.

Skontaktuj Się Z Firmę

Wyślij wiadomość do Kanínuholan - The Rabbithole:

Skróty

Udostępnij

Kategoria